Nýbýlavegur 32

Grenndarkynning

Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa þann 13. apríl 2026 var samþykkt að grenndarkynna byggingarleyfisumsókn vegna lóðarinnar nr. 32 við Nýbýlaveg fyrir hagsmunaaðilum við Nýbýlaveg nr. 30, Dalbrekku nr. 27, 54, 56, 58 og Laufbrekku nr. 2, 4 og 6.

 

Sótt er um að breyta fjórum íbúðum á 3. hæð í gistiheimili í flokki II.

 

Ofangreind tillaga, sem er sett fram á uppdráttum dags. 18. febrúar 2026, er aðgengileg á Skipulagsgátt, www.skipulagsgatt.is málsnr. 469/2026, á vef Kópavogsbæjar www.kopavogur.is / umhverfi / skipulagsmál / skipulag og framkvæmdaleyfi í kynningu og í þjónustuveri Kópavogsbæjar að Digranesvegi 1.

 

Öll sem telja sig eiga hagsmuna að gæta eru hvött til að kynna sér tillögurnar. Athugasemdum og ábendingum við ofangreinda tillögu skal skila í gegnum Skipulagsgátt www.skipulagsgatt.is, málsnr. 469/2026, eigi síðar en 24. maí 2026.

 

Ef óskað er eftir frekari upplýsingum um tillöguna er hægt að hafa samband við starfsfólk skipulagsdeildar með því að senda tölvupóst á skipulag@kopavogur.is.

 

Vakin er athygli á að athugasemdir teljast til opinberra gagna í allri skipulagsmeðferð. Skipulagsfulltrúi Kópavogsbæjar notar upplýsingar sem eru settar fram vegna athugasemda við skipulag til úrvinnslu og auðkenningar. Kópavogsbær er afhendingarskyldur aðili samkvæmt lögum um opinber skjalasöfn nr. 77/2014 og afhendir gögn til varðveislu til Þjóðskjalasafns Íslands.