Skemmuvegur 46

Grenndarkynning

Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa þann 8. desember 2025 var samþykkt að grenndarkynna tillögu að breyttu deiliskipulagi fyrir lóðina nr. 46 við Skemmuveg fyrir lóðarhöfum lóðanna nr. 6, 8, 10A, 10B, 12, 14, 16, 18, 20, 22, 24, 26, 28, 30, 32, 34, 34A, 36, 38, 40, 42 og 44 við Skemmuveg (Bleik gata).

 

Sótt er um byggingarleyfi fyrir 252 m2 viðbyggingu við suðurhluta núverandi iðnaðarhúss á lóðinni. Fyrirhuguð viðbygging er í sömu hæð og núverandi iðnaðarhús, er á tveimur hæðum auk millilofts og með reistu þaki. Við breytinguna eykst byggingarmagn úr 1.226 m2 í 1.478 m2 og nýtingarhlutfall lóðarinnar hækkar úr 0,82 í 1,0. Fyrirkomulag bílastæða breytist og afmörkun lóðar breytist á suðvesturhorni lóðar. Lóð minnkar um 19,27 m2, úr 1.488 m2 í 1.468,73 m2.

Ofangreind tillaga, sem er sett fram á uppdrætti dags. 1. apríl 2026, er aðgengileg á Skipulagsgátt, www.skipulagsgatt.is málsnr. 399/2026, á vef Kópavogsbæjar www.kopavogur.is / umhverfi / skipulagsmál / skipulag og framkvæmdaleyfi í kynningu og í þjónustuveri Kópavogsbæjar að Digranesvegi 1.

 

Þau sem telja sig eiga hagsmuna að gæta eru hvött til að kynna sér tillögurnar. Athugasemdum og ábendingum við ofangreinda tillögu skal skila í gegnum Skipulagsgátt www.skipulagsgatt.is, málsnr. 399/2026, eigi síðar en 10. maí 2026.

 

Ef óskað er eftir frekari upplýsingum um tillöguna er hægt að hafa samband við starfsfólk skipulagsdeildar með því að senda tölvupóst á skipulag@kopavogur.is.

 

Vakin er athygli á að athugasemdir teljast til opinberra gagna í allri skipulagsmeðferð. Skipulagsfulltrúi Kópavogsbæjar notar upplýsingar sem eru settar fram vegna athugasemda við skipulag til úrvinnslu og auðkenningar. Kópavogsbær er afhendingarskyldur aðili samkvæmt lögum um opinber skjalasöfn nr. 77/2014 og afhendir gögn til varðveislu til Þjóðskjalasafns Íslands.

Skemmuvegur 46
Tímabil
8. apríl til 10. maí 2026