Skemmuvegur 48-50

Grenndarkynning

Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa þann 23. júní 2025 var samþykkt að grenndarkynna byggingarleyfisumsókn fyrir lóðina nr. 48-50 við Skemmuveg fyrir hagsmunaaðilum að Skemmuvegi 34, 34A, 36, 38, 40, 42, 44 og Smiðjuvegi 4E, 28 og 66.

Sótt er um 313,5 m² viðbyggingu á einni hæð á suðurhluta lóðarinnar. Nýtingarhlutfall hækkar úr 0,35 í 0,39. Erindinu fylgja uppdrættir í mkv. 1:100 dags. 18. janúar 2022, uppfærðir 7. mars 2025 og umsögn skipulagsdeildar dags. 19. júní 2025.

Eru þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta hvattir til að kynna sér tillögurnar. Athugasemdum og ábendingum við ofangreinda tillögu skal skila í gegnum skipulagsgátt  www.skipulagsgatt.is, málsnr. 961/2025, eigi síðar en fimmtudaginn 7. ágúst 2025. Ef óskað er eftir frekari upplýsingum um tillöguna er hægt að hafa samband við starfsfólk skipulagsdeildar með því að senda tölvupóst á skipulag@kopavogur.is.