Skjólbraut 5

Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa þann 25. mars 2026 var samþykkt að grenndarkynna umsókn um byggingarleyfi fyrir hagsmunaaðilum að að Skjólbraut nr. 3, 3A, 7, 7A, 4, 6, og 8.

 

Sótt er um byggingarleyfi fyrir að hækka þak hússins og setja tvo kvisti á þakið, einn að norðanverðu og annan að sunnanverðu að Skjólbraut 5. Birt flatarmál eykst um 36,7 m², úr 139,6 m² í 176,3 m². Nýtingarhlutfallið hækkar úr 0,19 í 0,24.

 

Ofangreind tillaga, sem er sett fram á uppdráttum dags. 24. janúar 2026 ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 9. mars 2026, leiðrétt 13. apríl 2026, er aðgengileg á Skipulagsgátt, www.skipulagsgatt.is málsnr. 417/2026, á vef Kópavogsbæjar www.kopavogur.is / umhverfi / skipulagsmál / skipulag og framkvæmdaleyfi í kynningu og í þjónustuveri Kópavogsbæjar að Digranesvegi 1.

 

Öll sem telja sig eiga hagsmuna að gæta eru hvött til að kynna sér tillöguna. Athugasemdum og ábendingum við ofangreinda tillögu skal skila í gegnum Skipulagsgátt www.skipulagsgatt.is, málsnr. 417/2026, eigi síðar en 17. maí 2026.

 

Ef óskað er eftir frekari upplýsingum um tillöguna er hægt að hafa samband við starfsfólk skipulagsdeildar með því að senda tölvupóst á skipulag@kopavogur.is.

 

Vakin er athygli á að athugasemdir teljast til opinberra gagna í allri skipulagsmeðferð. Skipulagsfulltrúi Kópavogsbæjar notar upplýsingar sem eru settar fram vegna athugasemda við skipulag til úrvinnslu og auðkenningar. Kópavogsbær er afhendingarskyldur aðili samkvæmt lögum um opinber skjalasöfn nr. 77/2014 og afhendir gögn til varðveislu til Þjóðskjalasafns Íslands.

Skjólbraut 5
Tímabil
15. apríl til 17. maí 2026