Ásbraut

Í samræmi við 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er auglýst tillaga að deiliskipulagi Ásbrautar.

 

Bæjarráð í umboði bæjarstjórnar Kópavogs samþykkti þann 17. júlí 2025 að auglýsa tillögu að deiliskipulagi Ásbrautar dags. 20 júní 2025. Markmið með deiliskipulaginu er að endurhanna göturými Ásbrautar til að bæta stígakerfi og tryggja með samræmdum hætti örugga og greiða umferð gangandi og hjólandi vegfarenda í samræmi við aðalskipulag Kópavogsbæjar. Með deiliskipulaginu er núverandi byggðarmynstur fest í sessi og lagðar skipulagslegar forsendur fyrir vistlegri götumynd og öruggari göngu- og hjólaleiðum.

 

Þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta eru hvattir til að kynna sér tillöguna.

 

Athugasemdum og ábendingum skal skila í gegnum skipulagsgátt www.skipulagsgatt.is, málsnr. 930/2024, eigi síðar en 18. september 2025.

Vakin er athygli á að athugasemdir teljast til opinberra gagna í allri skipulagsmeðferð. Skipulagsfulltrúi Kópavogsbæjar notar upplýsingar sem eru settar fram vegna athugasemda við skipulag til úrvinnslu og auðkenningar. Kópavogsbær er afhendingarskyldur aðili samkvæmt lögum um opinber skjalasöfn nr. 77/2014 og afhendir gögn til varðveislu til Þjóðskjalasafns Íslands.