27.03.2026 kl. 20:00 - Salurinn
Vegna gríðalegrar eftirspurnar og ánægju er fjórða sýningin, þann 7. maí komin í sölu!
Sýningarnar þann 28. og 29. mars og aukasýningin þann 10. apríl vöktu gríðarlega lukku meðal áhorfenda og voru færri sem komust en vildu. Því hefur fjórða sýningin verið sett af stað í sölu!
Guðni Ágústsson og Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir mæla þetta stærsta bókmenntaafrek Íslandssögunnar af munni fram og kallast á við Gissur Pál Gissurarson óperusöngvara sem flytur áheyrendum Njálutengda og rammíslenska söngtónlist.
Hin fjölsótta Njáluvaka í Rangárþingi var hugarfóstur Guðna Ágústssonar, formanns nýstofnaðs Njálufélags. Engum vafa er lengur undirorpið að þetta stórkostlega bókmenntaverk á sér sterkar rætur í íslenskri þjóðarsál. Hin meitlaða frásögn af köldum kvennaráðum, einlægri vináttu, miskunnarlausum hefndarþorsta, ástum, átökum og örlögum litríkra sögupersóna magnast í meðförum þeirra Guðna og Ólínu sem hér hafa þjappað sögunni saman og mæla hana af munni fram eins og þeim er einum lagið.
Með þeim á sviðinu verður hetjutenórinn Gissur Páll Sigurðarson óperusöngvari. Hann hefur alla tíð lagt mikla rækt við gamla íslenska söngtónlist og er því svo sannarlega réttur maður á réttum stað til þess að kallast á við þau Guðna Ágústsson og Ólínu Kjerúlf Þorvarðardóttur um sögusvið Njálu auk þess að syngja Njálutengd og rammíslensk lög við undirleik Matthildar Önnu Gísladóttur.
Hér er Brennu-Njáls saga sett í nýjan og spennandi búning og skreytt með óperusöng Gissurar Páls á þessum gömlu íslensku slóðum.
29.04.2026 kl. 14:00 - Bókasafn Kópavogs
Hannyrðaklúbburinn Kaðlín hittist alla miðvikudaga á 2. hæð aðalsafns. Heitt á könnunni og öll velkomin!
Nánari upplýsingar veitir Gréta Björg Ólafsdóttir, gretabjorg@kopavogur.is
Fylgist með í Facebook-hópnum Hannyrðaklúbburinn Kaðlín | Bókasafn Kópavogs.
29.04.2026 kl. 17:00 - Bókasafn Kópavogs
Elfa Ýr Gylfadóttir verður gestur hjá okkur á Bókasafni Kópavogs og heldur erindi um upplýsingaóreiðu. Elfa er fjölmiðla- og fjarskiptafræðingur að mennt og framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar. Hún var ein þeirra fyrstu til að vekja athygli á hugtakinu upplýsingaróreiða og hefur haldið fjölda erinda og skrifað greinar um efnið á umliðnum árum.
Frítt inn og öll velkomin meðan húsrúm leyfir.
Erindið er hluti af verkefninu ,,Bókasafnið gegn upplýsingaóreiðu“ sem er styrkt af Bókasafnasjóði.
29.04.2026 kl. 16:00 - Bókasafn Kópavogs
Opnar skynjunarsögustundir fara fram seinasta miðvikudag mánaðar kl. 16 í barnadeild aðalsafns.
Eyrún Ósk leikari og rithöfundur og Gréta Björg munu lesa sögur fyrir börnin, þar sem þær leggja áherslu á skynjun með hljóðum, leikmunum og leikrænum tilburðum.
Sögustundirnar eru öllum opnar meðan húsrúm leyfir og henta best börnum á aldrinum 0-5 ára.
Verið velkomin í notalega sögustund.
Skynjunarsögustundir eru partur af verkefninu Töfraheimur ævintýranna sem er styrkt af Barnamenningarsjóði.
29.04.2026 kl. 18:00 - Gerðarsafn
Verið velkomin á námskeiðið Horfa á, hugsa og skrifa um myndlist með Jóni Proppé fimmtudaginn 30. apríl kl. 18:00–21:00.
Á námskeiðinu mun Jón fjalla um ólíkar leiðir til að nálgast greiningu og skrif um myndlist. Þátttakendur munu skoða myndlist úr ýmsum áttum og farið verður yfir hvað fellst í því að greina verk og miðla þeim í ræðu eða riti. Námskeiðið fer fram á íslensku.
Áhugasamir eru beðnir um að senda tölvupóst á gerdarsafn@kopavogur.is og munu fá sent efni til undirbúnings þegar nær dregur.
Að námskeiði loknu munu þátttakendur hafa kynnst fjölbreyttum aðferðum til að skrifa um myndlist og fengið í hendur verkfæri sem nýtast áfram í sjálfstæðri vinnu.
Jón Proppé er listheimspekingur, kennari og sýningastjóri sem hefur skrifað fjölda bóka og greina um myndlist. Hann hefur jafnframt kennt og leiðbeint myndlistar- og listfræðinemum um áratugaskeið við Listaháskóla Íslands, Ljósmyndaskólanum, Kvikmyndaskólanum og víðar.
29.04.2026 kl. 12:00 - Salurinn
FlytjendurBerglind María Tómasdóttir – bassaflautaBergþóra Kristbergsdóttir – klarinettTumi Árnason – sópran saxófónnKarólína Einarsdóttir – stafræn vinnsla / Supercollider
Karólína EinarsdóttirBA Nýmiðlatónsmíðar
Karólína Einarsdóttir (f. 2002) er hljóðfæraleikari, lagasmiður og tónskáld. Karólína lærði ung klassískan píanóleik við tónskólann Do Re Mi og hefur allar götur síðan verið virk við tónsköpun. Hún hefur leikið í ýmsum hljómsveitum og er til að nefna stofnmeðlimur hljómsveitarinnar GRÓU.
Við tónsköpun leggur Karólína meðal annars áherslu á frjálsan spuna, hlustun, og á að beygja – teygja – beygla – bjaga – breyta – afbaka – raska og krumpa hljóð akústískra hljóðfæra með stafrænum hætti.
Útskriftarverk
Gleypa
Hljóðin falla saman og týnast hvort í öðru, þau umbreytast þar til ekkert er eftir nema hugmyndin um þau. Eitt hljóð, ofið úr földum hljóðum,hljóðin gleypa hvort annað.
Verkið Gleypa skoðar hlustun eftir eiginleikum hljóða, líkindum þeirra á milli og uppruna. Hvað hefur týnst? Hvaða hljóðum koma akústísku hljóðfærin ekki til skila? Hver er uppruni efnisins sem eyrun hlusta á og skiptir hann máli?
Portraitmyndir af útskriftarnemendum 2026 Tónlist
29.04.2026 kl. 13:30 - Salurinn
FlytjendurGunnar Árni Hreiðarsson
Gunnar Árni HreiðarssonBA Nýmiðlatónsmíðar
Gunnar Árni Hreiðarsson hefur frá unga aldri haft áhuga á raftónlist og hóf að semja eigin tónlist um fermingaraldur. Árið 2018 vann hann að tónlist af fullum krafti, en það ár varð honum sérstaklega lærdómsríkt og festi áhugann enn frekar í sessi. Gunnar hefur í rúman áratug lagt áherslu á að læra sem mest um tónlistarsköpun og aðferðir tengdar raf- og nýmiðlatónlist. Hann hefur prófað sig áfram í ólíkum stílum.
Árið 2023 hóf hann nám í nýmiðlatónsmíðum við Listaháskóla Íslands þar sem hann mun útskrifast með bakkalárgráðu í vor. Í náminu hefur Gunnar dýpkað þekkingu sína á hljóðvinnslu, raftónsmíðum og skapandi aðferðum tónsmíða.
ÚtskriftarverkGunnar er að mestu sjálflærður með mikla ástríðu fyrir danstónlist.
Með þessu verki vill hann leggja áherslu á þá tónlistarstíla sem hann brennur mest fyrir sem og sameina þá við það sem hann hefur tileinkað sér í náminu.LOKAVERK 26
Portraitmyndir af útskriftarnemendum 2026 Tónlist
29.04.2026 kl. 15:00 - Salurinn
Haukur IngólfssonBA Nýmiðlatónsmíðar
Haukur Ingólfsson hóf tónlistarnám við Tónskóla Neskaupstaðar 8 ára gamall og lærði þar trommuleik í tæpan áratug. Eftir langa pásu frá tónlistarnámi tók Listaháskólinn við, en Haukur mun í vor útskrifast með BA gráðu í Nýmiðlatónsmíðum. Frá unga aldri starfaði hann sem trommuleikari víða um Austurland við hin ýmsu tilefni með fjölda hljómsveita, t.a.m. á dansleikjum, söngleikjum, tónleikaröðum og sem slagverksleikari á stofntónleikum Sinfóníuhljómsveitar Austurlands. Skömmu eftir að hafa flutt til Reykjavíkur árið 2020 fór hann að skapa eigin tónlist og hóf nám við LHÍ haustið 2023. Sumarið 2024 stóðu hann og Katla Heimisdóttir fyrir lifandi hljóðinnsetningu á Innsævi, listahátíð Fjarðabyggðar. Ásamt náminu í tónsmíðum tekur Haukur ljósmyndir á filmu, vinnur að eigin tónlistarsköpun og spilar á trommur með rokkhljómsveitinni Moogie & the Boogiemen.
ÚtskriftarverkAð Eiga Svör við Öllu – Haukur Ingólfsson
Varasamt Súrdeig – Haukur Ingólfsson
Portraitmyndir af útskriftarnemendum 2026 Tónlist
29.04.2026 kl. 19:00 - Salurinn
Fanný Hrund ÞorsteinsdóttirBA Nýmiðlatónsmíðar
Fanný hefur framan af starfað sem hjúkrunarfræðingur á sviði geðheilbrigðis. Veturinn 2005/2006 stundaði hún nám við LHÍ í Nýmiðlatónsmíðum. Fanný hóf nám að nýju árið 2022.
Námið hefur verið henni farvegur sköpunar og frelsis og haft víðtæk áhrif á Fanný sem tónlistarkonu. Fanný leggur áherslu á hljóðhönnun og vinnur mikið með forritin SuperCollider og MetaSynth.
Hljóðheimurinn er innblásinn af náttúru og umhverfi nær og fjær, jafnt ofanjarðar sem neðanjarðar. Í verkum sínum reynir hún að skapa áþreifanlegan hljóðheim sem leiðir inn á margbreytilegar víddir.
Portraitmyndir af útskriftarnemendum 2026 Tónlist
29.04.2026 kl. 20:30 - Salurinn
Flytjendur
Salóme Katrín: píanó og rödd Svanhildur Lóa Bergsveinsdóttir: trommur Ingibjörg Elsa Turchi: bassi Tumi Torfason: trompet Hannes Arason: trompet Björgvin Ragnar Hjálmarsson: saxófónn Tumi Árnason: saxófónn Erla Hlín Guðmundsdóttir: rödd Maria-Carmela Raso: rödd
Salóme Katrín MagnúsdóttirBA Nýmiðlatónsmíðar
Salóme Katrín Magnúsdóttir er tónlistarkona frá Ísafirði, hvar hún steig fyrstu skrefin í sínu tónlistarnámi. Hún flutti til Reykjavíkur haustið 2015 til að nema við heimspekideild HÍ, en komst fljótlega að því að tónlistin ætti hug hennar allan. Hún kvaddi því háskólann, hóf söngnám við Tónlistarskóla FÍH og útskrifaðist þaðan vorið 2020. Síðan þá hefur Salóme gefið út sína eigin tónlist við góðar undirtektir gagnrýnenda sem áheyrenda, komið fram á ótal tónleikum bæði hérlendis og erlendis og unnið með fjölda tónlistarfólks að ýmsum verkefnum. Salóme hóf nám við tónsmíðabraut LHÍ haustið 2023, hvaðan hún mun útskrifast í vor með bakkalárgráðu í nýmiðlatónsmíðum.
Útskriftarverkefni
Raddspuni
Growing
Rise With the Tide
perfect 3
Dagarnir líða
death
Within What Could Be
Everything I Ever Wanted
Inside
Höfundur laga og texta: Salóme Katrín Magnúsdóttir
Portraitmyndir af útskriftarnemendum 2026 Tónlist
29.04.2026 kl. 12:15 - Gerðarsafn
Verið hjartanlega velkomin á leiðsögn sýningarstjóranna Brynju Sveinsdóttur og Studio Studio (Arnar Freyr Guðmundsson og Birna Geirfinnsdóttir) um sýninguna Hörður miðvikudaginn 29. apríl kl. 12:15 í Gerðarsafni.
Aðgangur ókeypis og öll velkomin!
Hörður Ágústsson (1922-2005) nálgaðist myndlist, hönnun, rannsóknir og kennslu af heildrænni hugsun. Hugsun sem var fjarri því að vera einföld eða línuleg heldur leitaðist við að má út skil á milli ólíkra listgreina til að finna sameiginlegan og margslunginn kjarna sjónmenningar.
Hörður þróaði nálgun sína út frá innblæstri sem hann sótti úr umhverfi sínu og hugmyndafræði um eðli og möguleika sjónlista. Í allri sköpun sinni leyfði hann sér að flæða á milli ólíkra tjáningarleiða, bæði hvað varðar fagurfræði og listgreinar. Í viðtali segir Hörður að hann hafi sveiflast á milli leitarinnar að hinu fullkomna formi og ljóðrænnar tjáningar: „Í mér eru bæði arkitekt og ljóðskáld og þeir eru sífellt að rífast.“
Á sýningunni eru verk Harðar sem birta nálgun hans á form- og litafræði á árunum 1955-1978. Verkin á sýningunni þvera það sem hefðbundið væri flokkað sem myndlist og hönnun og tengja fullkláruð verk, undirbúningsverk og hugmyndavinnu saman. Í þessari formrænu könnun hans má finna það svið þar sem arkitektinn og ljóðskáldið tvinnast hvað mest saman, þar sem rannsakandinn og skaparinn ná saman í heildrænni hugsun um kjarna allrar listar.
29.04.2026 kl. 20:00 - Gerðarsafn
Improv for Dance Enthusiasts býður gestum á gjörningakvöld tileinkað skemmtilegri óhlýðni í Gerðarsafni!Í samstarfi við áhorfendur munu flytjendur kanna hvernig hægt sé að ögra ríkjandi viðmiðum án þess að umhyggja, skýrleiki og samþykki hverfi frá. Kvöldinu er sýningarstýrt af listasamsteypunni Improv for Dance Enthusiasts, sem mun færa áhorfendum verkfæri til þess að eiga í öruggum samskiptum við flytjendur, rýmið og hvert annað.
Listamenn verða tilkynntir síðar!
Gjörningakvöldin á Gerðarsafni eru skipulögð í samstarfi við Hamraborg Festival Aðgangur ókeypis og öll velkomin