Götuganga Virkni og vellíðan haldin í fjórða sinn

Götugangan í Kópavogi er vinsæll viðburður fyrir 60 ára og eldri.
Götugangan í Kópavogi er vinsæll viðburður fyrir 60 ára og eldri.
Götuganga Virkni og Vellíðan verður haldin þriðjudaginn 12. maí næstkomandi klukkan 13:00 í Kópavogi. Um er að ræða vinsælan íþrótta- og heilsueflingarviðburð fyrir 60 ára og eldri sem nú fer fram í fjórða sinn.
Gangan hefur notið mikilla vinsælda undanfarin ár og laðað að sér fjölda þátttakenda sem koma saman til að hreyfa sig, njóta samveru og taka þátt í léttum keppnisanda. Í ár verður boðið upp á nýjung þar sem þátttakendur geta valið á milli tveggja vegalengda, 1,5 km og 3,4 km, sem gerir viðburðinn aðgengilegri fyrir enn fleiri.
Keppt verður í þremur aldursflokkum, 60–69 ára, 70–79 ára og 80 ára og eldri. Veitt verða verðlaun fyrir efstu sætin í karla- og kvennaflokki auk þess sem allir skráðir þátttakendur eiga möguleika á að vinna útdráttarverðlaun.
Þátttaka í göngunni er ókeypis og eru allir hvattir til að skrá sig og taka þátt. Einnig eru gestir velkomnir til að mæta og hvetja þátttakendur. Skráning er hafin og nánari upplýsingar um viðburðinn verða birtar þegar nær dregur.