Mörg börn sterkari en einn fullorðinn

Inga Bríet Valberg
Inga Bríet Valberg
Níunda Kópavogssagan er komin í loftið en það er Inga Bríet Valberg, nemandi í 7. bekk í Snælandsskóla sem er viðmælandinn.
Hún er metnaðarfullur táningur og margt til lista lagt, sigraði á dögunum stóru upplestrarkeppnina í Kópavogi, hefur unnið til verðlauna fyrir ljóðin sín, semur lög á gítarinn sinn og tekur þátt í eins miklu menningarstarfi og hún kemst yfir.
 
Af henni geislar sjálfstraust, hlýja, fjör og fegurð undir gullnum lokkum og fallegum freknum. Hún vill láta gott af sér leiða, langar að stofna hljómsveit, dreymir um framtíð í skapandi sviðslistum og elskar aparóluna í dalnum.