Malbikun

Miðvikudaginn 29. apríl frá kl. 9:00 til um það bil 15:00 er áætlað að endurnýja malbik á Kópavogsbraut á milli Sunnuhlíðar og Skjólbrautar ef veður leyfir. Lokað verður fyrir umferð við hringtorg á Kópavogsbraut við Sunnuhlíð og á gatnamótum Kópavogsbrautar og Skjólbrautar. Útbúnar verða bráðabirgðahjáleiðir fyrir Meðalbraut frá Skjólbraut og fyrir Kópavogstún og Kópavogsgerði um Kópavogsbarð. Vinsamlegast athugið að aka um hjáleiðirnar með gætni og stilla hraða í hóf.
Umferð gangandi og hjólandi helst óskert en sýna þarf aðgát þar sem farið er um í nágrenni við vinnuvélar. Beðist er velvirðingar á þeim óþægindum sem framkvæmdirnar kunna að valda og eru allir vegfarendur óháð fararmáta beðnir um að sýna tillitssemi, halda hraða í hófi og virða merkingar.