Auðbrekka þróunarsvæði, svæði 4. Auðbrekka 15-27, oddatölur.

Auglýsing.

Bæjarstjórn Kópavogs samþykkti á fundi sínum þann 11. nóvember 2025 að tillaga að nýju deiliskipulagi fyrir svæði 4 á þróunarsvæði Auðbrekku, nánar tiltekið Auðbrekku 15 til 27 (oddatölur) verði forkynnt á vinnslustigi með vísan til 3. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

 

Í tillögunni felst áframhaldandi þróun svæðisins úr athafnasvæði í blandaða byggð. Íbúðir á svæði 4 verða samtals 89 þar sem þriðjungi íbúða verður komið fyrir á efstu hæð í núverandi húsnæði, um þriðjungi í nýjum ofanábyggingum ofan á núverandi húsnæði og þriðjungi í nýrri byggingu sem mun rísa á lóð nr. 15 við Auðbrekku. Torgi, göngutengingu og almenningsrými verður komið fyrir milli Auðbrekku 13 og 15.

 

Tillagan er sett fram á uppdráttum ásamt skilmálahefti dags. 17. október 2025, skýringarhefti og húsakönnun dags.17. október 2025, skipulagslýsingu dags. 2015, uppf. 17. október 2025, minnisblað Mannvit um umhverfisáhrif dags. 2015 og uppfærð hljóðkort dags janúar 2026.

 

Mánudaginn 9. febrúar 2026 milli kl. 17:00-18:30 verður opinn fundur um tillöguna í safnaðarheimili Kópavogskirkju, Hábraut 1A.

 

Nánar um tillöguna vísast til kynningargagna.

 

Ofangreind skipulagslýsing er aðgengileg í Skipulagsgátt, www.skipulagsgatt.is, mál nr. 100/2026 og á vef Kópavogsbæjar www.kopavogur.is/ umhverfi/ skipulagsmál/ skipulag og framkvæmdaleyfi í kynningu. Fyrir frekari upplýsingar er hægt að senda fyrirspurn á netfangið skipulag@kopavogur.is. Einnig er hægt er að bóka símtal í gegnum www.kopavogur.is.

 

Eru þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta hvattir til að kynna sér tillöguna. Athugasemdir og ábendingar skulu hafa borist skriflega gegnum Skipulagsgátt www.skipulagsgatt.is málsnr. 100/2026, eigi síðar en 12. mars 2026. Ef óskað er frekari upplýsinga um tillöguna má hafa samband við starfsfólk skipulagsdeildar á póstfangið skipulag@kopavogur.is.

Skipulagsfulltrúi Kópavogs.