27.03.2026 kl. 20:00 - Salurinn
Vegna gríðalegrar eftirspurnar og ánægju er fjórða sýningin, þann 7. maí komin í sölu!
Sýningarnar þann 28. og 29. mars og aukasýningin þann 10. apríl vöktu gríðarlega lukku meðal áhorfenda og voru færri sem komust en vildu. Því hefur fjórða sýningin verið sett af stað í sölu!
Guðni Ágústsson og Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir mæla þetta stærsta bókmenntaafrek Íslandssögunnar af munni fram og kallast á við Gissur Pál Gissurarson óperusöngvara sem flytur áheyrendum Njálutengda og rammíslenska söngtónlist.
Hin fjölsótta Njáluvaka í Rangárþingi var hugarfóstur Guðna Ágústssonar, formanns nýstofnaðs Njálufélags. Engum vafa er lengur undirorpið að þetta stórkostlega bókmenntaverk á sér sterkar rætur í íslenskri þjóðarsál. Hin meitlaða frásögn af köldum kvennaráðum, einlægri vináttu, miskunnarlausum hefndarþorsta, ástum, átökum og örlögum litríkra sögupersóna magnast í meðförum þeirra Guðna og Ólínu sem hér hafa þjappað sögunni saman og mæla hana af munni fram eins og þeim er einum lagið.
Með þeim á sviðinu verður hetjutenórinn Gissur Páll Sigurðarson óperusöngvari. Hann hefur alla tíð lagt mikla rækt við gamla íslenska söngtónlist og er því svo sannarlega réttur maður á réttum stað til þess að kallast á við þau Guðna Ágústsson og Ólínu Kjerúlf Þorvarðardóttur um sögusvið Njálu auk þess að syngja Njálutengd og rammíslensk lög við undirleik Matthildar Önnu Gísladóttur.
Hér er Brennu-Njáls saga sett í nýjan og spennandi búning og skreytt með óperusöng Gissurar Páls á þessum gömlu íslensku slóðum.
30.04.2026 kl. 12:15 - Bókasafn Kópavogs
Í hádeginu þann 30. apríl næstkomandi munu söngnemendur úr Tónlistarskóla FÍH syngja ljúfa tóna fyrir gesti.
Tónleikarnir bera yfirskriftina Óður til móður og verða flutt lög um, til og frá mæðrum. Tilvalið er að taka sér stund frá önnum dagsins og hita upp fyrir mæðradaginn 10. maí. Undirleikur er í höndum Inga Bjarna Skúlasonar.
Brynjólfur Skúlason er söngvari frá Akureyri. Brynjólfur byrjaði ungur í píanó- og þverflautunámi en færði sig á unglingsaldri í söngnám. Eftir að hafa tekið pásu vegna háskólanáms hóf hann aftur söngnám við Tónlistarskólann á Akureyri. Þar lauk hann miðprófi í rytmískum söng vorið 2024 og leggur nú stund á framhaldsnám í söng við Tónlistarskóla FÍH. Brynjólfur hefur tekið þátt í ýmsum tónlistarverkefnum t.a.m. Upptaktinum í Hofi, FUSED á Græna Hattinum og fjölmörgum fleiri tónleikum og leiksýningum á Akureyri.
Ástrún Friðbjörnsdóttir er söngkona og lagahöfundur með bakgrunn í klassískum söng en er um þessar mundir að mennta sig í rytmískum söng. Hún gaf út stuttskífuna Sandkorn árið 2023 og hefur gefið út fleiri lög. Ástrún hefur sungið ýmiss konar tónlist, til dæmis flamenco, klassík, jazz og popp.
Valgerður Þorsteinsdóttir er söngkona og lagahöfundur. Hún skráði sig nýverið í framhaldsnám í rytmískum söng í FÍH, hún kláraði grunn og miðpróf í rytmískum söng í MÍT. Valgerður hefur getið sér gott orð og komið víða fram, meðal annars í húsi máls og menningar með Völukvæðum ásamt Kjartani Valdemarssyni, Einari Scheving og Þorgrími Jónssyni. Hún hefur sungið inn á hljómplötur hjá Pálma Sigurhjartarsyni og Sváfni Sig, og komið fram við ýmis tilefni. Þá hefur hún sungið með hljómsveitinni Sycamore Tree. Hún vinnur nú að sinni fyrstu sólóplötu sem hefur verið í bígerð frá því að hún byrjaði að syngja.
Þriðja árið í röð bjóða framhaldsnemendur af söngdeild Tónlistarskóla FÍH til ljúfra hádegistónleika á Bókasafni Kópavogs. Tónleikarnir fara fram síðasta fimmtudag hvers mánaðar en þar stíga tónlistarstjörnur framtíðarinnar á stokk með spennandi blöndu af gömlu og nýju, lög sem öll þekkja í bland við sjaldheyrðari smelli.Tónleikarnir standa yfir í um hálfa klukkustund og eru öllum opnir á meðan húsrúm leyfir. Aðgangur ókeypis.
30.04.2026 kl. 18:00 - Bókasafn Kópavogs
Panel discussion: Inclusion, Participation & Empowerment
Save the date! | Free event | Open to all women of foreign origin.
„Jafn aðgengi” (“Equal Access”) is a project by W.O.M.E.N. in Iceland, created by women for women, to strengthen knowledge, participation, and equality among women of foreign origin living in Iceland. It is funded by the Velferðar- og mannréttindaráð Kópavogs and hosted by Bókasafn Kópavogs.
This second event in the “Jafnt aðgengi - Equal Access” series brings together experts and women from the community for a panel discussion on inclusion, social participation, and empowerment.
The conversation will be moderated by Sanna Arthur, Vice-Chair of W.O.M.E.N., and will feature four distinguished panelists:
Björg Baldursdóttir, Chair of the Welfare and Human Rights Committee of Kópavogur
Fida Abu Libdeh, CEO of GeoSilica Iceland and Deputy of Parliament
Sara McMahon, Head of Communications at UN Women Iceland
Marvi Gil, Deputy Manager of Forensic Outpatient Services at Landspítali and a W.O.M.E.N. volunteer
The panel discussion will last approximately one hour, followed by a Q&A session and refreshments.
W.O.M.E.N. in Iceland
Hlutverk W.O.M.E.N er að vinna að jafnrétti og jafnri stöðu kvenna af erlendum uppruna á öllum sviðum þjóðlífsins. The role of W.O.M.E.N is to work towards equality and equal status for women of foreign origin in all areas of public life.
01.05.2026 kl. 20:00 - Salurinn
Tónleikaröðin Söngvaskáld hefur sitt þriðja starfsár í haust en hún er röð innilegra tónleika þar sem söngvaskáld spila sín lög og segja frá tilurð þeirra. Á Íslandi er að finna gífurlegt magn hæfileikaríks tónlistarfólks sem semur og spilar eigin lög, í öllum mögulegum tónlistarstefnum. Þessi tónleikaröð beinir athygli að slíku listafólki, varpar ljósi á margvíslegar aðferðir tónlistarfólks við lagasmíðar og gefur þjóðþekktum lögum meiri dýpt.
Það er enginn annar en Daði Freyr sem mun ljúka tónleikaröðinni Söngvaskáld tónleikaárið 25' - 26'!
Daði Freyr er íslenskur söngvari, lagahöfundur og pródúsent, þekktur fyrir hnyttna textagerð, grípandi syntha-popp og hrífandi orku. Hann vakti heimsathygli með smellinum sínum „Think About Things“ árið 2020, eftir að hafa verið kosinn til þátttöku í Eurovison fyrir hönd Íslands það árið. Þrátt fyrir að hafa ekki geta tekið þátt sökum heimsfaraldurs og samkomubanns hlaut lagið yfir 100 milljón streymi um heim allan og var lofaður af heimsþekktum stjörnum á borð við P!nk, James Corden og Russell Crowe.
Síðan þá hefur Daði byggt sér upp traustan alþjóðlegan aðdáendahóp með sínum einstökum og heillandi tónleikum, þar sem skemmtilegar danshreyfingar og leikgleði Daða spilar stórt hlutverk af upplifun tónleikagesta.Hann hefur selt upp tónleika víðs vegar um Evrópu og Bandaríkin og verið aðalnúmer á fjölda tónlistarhátíða víðs vegar um heiminn.
02.05.2026 kl. 11:30 - Bókasafn Kópavogs
Talar þú smá íslensku og vilt æfa þig?
Komdu að spila og tala íslensku á aðalsafni Bókasafns Kópavogs, alla laugardaga frá 11:30-13:00
Kaffi og kósý, kostar ekkert. Velkomin! Hvetjum sérstaklega fjölskyldur til að koma saman og æfa sig í íslensku yfir skemmtilegu spili. Hentar fyrir fullorðna og öll börn sem hafa eirð í sér til að spila.
Viðburðaröðin Tala og spila er styrkt af Menningar- og mannlífsnefnd.
Español
Hablas un poco de islandés y te gustaría practicar?
Ven a jugar cartas, tablas y charlar en islandés a la biblioteca principal de Kopavogur, cada sábado 11:30-13:00. Café, ambiente acogedor y entrada gratuita. Adecuado para adultos y niños que pueden concentrarse a jugar de tablas. Bienvenidos!
Esta es una serie de eventos financiados en colaboración con Menningar- og mannlífsnefnd.
English
Do you speak a little Icelandic and want to practice?
Come and play card- or board-games and talk Icelandic at the Kopavogur Library, main branch, every Saturday from 11:30-13:00
Coffee and cosy, free. Welcome! We especially want to encourage families to come together and practice Icelandic over a fun game. The event is suitable for grown-ups and children that are able to concentrate on board-games.
Tala og spila is funded by Menningar- og mannlífsnefnd.
Polski
Czy mówisz trochę po islandzku? Przyjdź pograć w karty albo gry planszowe i mów po islandzku w bibliotece w Kópavogur każdej soboty 11:30-13:00. Kawa i miły czas bezpłatnie. Zapraszamy!
Pусский
Если вы уже говорите немного по-исландски и хотите заговорить еще лучше, то приходите практиковать язык и играть в игры на исландском языке в библиотеку Копавогура каждую субботу с 11:30 до 13:00. Кофе и уют и все бесплатно. Добро пожаловать!
02.05.2026 kl. 11:30 - Bókasafn Kópavogs
Bókasafn Kópavogs ásamt Vigdísi, vinum gæludýra á Íslandi, býður börnum að lesa fyrir hunda sem hafa fengið sérstaka þjálfun í að hlusta á upplestur.
Aðeins eru sex laus pláss í hvert sinn.
Smelltu hér til að skrá barn.
Viðburðurinn er hugsaður fyrir 5-12 ára börn sem eru byrjuð að lesa sjálf. Lestrarstundin er ekki ætluð börnum sem glíma við hundahræðslu heldur er markmiðið að auka öryggi við lestur, ekki síst hjá þeim sem eiga við lestrarörðugleika að stríða. Hundurinn hjálpar barninu að slaka á, gagnrýnir ekki lesturinn og leiðréttir ekki barnið.
02.05.2026 kl. 14:00 - Bókasafn Kópavogs
Hringrásarsafnið opnar á ný á Bókasafni Kópavogs
Komdu og fagnaðu með okkur þegar Hringrásarsafnið (áður Munasafnið) opnar á ný á Bókasafni Kópavogs. Hringrásarsafnið er deilistöð þar sem hægt er að fá ýmsa nytsamlega hluti lánaða í stað þess að þurfa að kaupa þá, með áherslu á samnýtingu, sjálfbærni og hringrásarhugsun.
Við bjóðum upp á notalega stund með vöfflum og kaffi fyrir alla aldurshópa, þar sem gestir geta kynnt sér Hringrásarsafnið og hvernig það virkar.
Á dagskránni er einnig skapandi smiðja fyrir börn og fjölskyldur, Táfýlutextíll, undir leiðsögn textíl-listakonunnar Emmu Shannon. Í smiðjunni lærum við að umbreyta gömlum sokkum í nýjan textíl með einföldum og skemmtilegum aðferðum. Taktu með þér slitna sokka, engin fyrri textílreynsla er nauðsynleg.Í tilefni opnunarinnar fá allir sem mæta á viðburðinn 3 mánaða fría aðild að Hringrásarsafninu.
Relaunch of Hringrásarsafnið at Kópavogur Public Library
Join us for the relaunch of Hringrásarsafnið (formerly Munasafnið) at Kópavogur Public Library. Hringrásarsafnið is a sharing station where people can borrow useful everyday items instead of buying them, with a focus on sharing, sustainability, and circular thinking.
We’re celebrating with a welcoming event for all ages, with waffles, coffee, and a chance to learn more about the sharing station and how it works.
The programme also includes Táfýlutextíll, a creative workshop for children and families led by textile artist Emma Shannon. In the workshop, participants will explore simple ways to transform old socks into new textiles. Bring worn-out socks with you; no previous experience is needed.To celebrate the relaunch, everyone who attends will receive a free 3-month membership to Hringrásarsafnið.
02.05.2026 kl. 12:00 - Náttúrusafn Kópavogs
Velkomin í fjöruga fjölskyldustund þar sem við skoðum lífríki fjörunnar, leitum að kröbbum og kuðungum og fræðumst um þetta áhugaverða búsvæði á mörkum lands og sjávar. Hermann Dreki Guls, líffræðingur ásamt fleirum verður á staðnum til að leiðbeina gestum við lífveruleit og greiningar. Viðburðurinn hentar fjölskyldum með börn á öllum aldri og öðrum forvitnum.
Fjöruferðin verður í Fossvogsfjöru, Kópavogs megin, skammt frá þar sem Fossvogslækur rennur til sjávar milli kl. 12 og 14. Við hvetjum fólk til þess að nýta almenningssamgöngur, til að hjóla eða koma gangandi. Við bendum einnig á að nægt bílastæðapláss er við Menningarhúsin og Molann í aðeins 10 mínútna göngufjarlægt frá fjörunni.
Nákvæm staðsetning: https://maps.app.goo.gl/kHXefT41GGqkHstK8
Endilega hafið meðferðis einhverskonar íláti (ísbox eða fötur) skóflu og forvitnina að vopni. Fyrir fuglaáhuga fólk gæti verið gaman að taka kíki. Til að öll njóti sín sem best er mikilvægt að klæða sig eftir aðstæðum, í góðan skófatnað og vatnsheld föt og jafnvel með þurra sokka í vasanum – líka fullorðin!
Aðgangur er ókeypis | Öll velkomin!
Um fjöruna í Kópavogi og búsvæðavernd:Fossvogur Kópavogs megin er ekki aðeins vinsælt útivistarsvæði heldur einnig hluti af friðlýstu náttúrusvæði Skerjafjarðar sem nýtur verndar til að varðveita lífríki fjöru og grunnsævis. Þar má finna lækjarós, sjór og leirur, hnullungafjörur og fjörubakka sem mynda lifandi strandvistkerfi sem tekur stöðugum breytingum með sjávarföllum og árstíðum. Innan sveitarfélagsins Kópavogs njóta Kópavogsleirur og ós Fossvogslækjar sérstakrar verndar þar sem fínkornótt leira og þangfjara skapa kjöraðstæður fyrir smádýr sem eru undirstaða fæðu fyrir fjölbreytt fuglalíf allt árið um kring. Markmið friðlýsingarinnar er að vernda afar fjölbreytt lífríki innan höfuðborgarsvæðisins um leið og staðið er vörð um gildi svæðisins til útivistar og fræðslu.
03.05.2026 kl. 13:30 - Salurinn
Herdís Anna Jónasdóttir, sópran og Helga Bryndís Magnúsdóttir, píanóleikari frumflytja tvo splunkunýja ljóðaflokka sem og önnur sönglög, þar af nokkur í nýjum útsetningum, eftir tónskáldin Halldór Smárason og Finn Karlsson.
Ljóðaflokkurinn Lítið að frétta er saminn af Halldóri Smárasyni sérstaklega fyrir Herdísi Önnu Jónasdóttur og tileinkaður móður hans. Texti verksins er fenginn úr tölvupóstsamskiptum þeirra mæðgina frá námsárum Halldórs. Skilaboðin innihalda meðal annars hversdagslegar fréttir, smáatriði úr heimilislífinu og stuttar kveðjur. Í tónverkinu eru brot úr þessum textum tekin úr upprunalegu samhengi og raðað saman á ný, líkt og mósaík úr samhengislausum setningum sem mynda nýja heild. Úr þessu hráefni verða til fimm kaflar þar sem dregin er fram spennan milli persónulegra skilaboða og formlegs samskiptaforms tölvupóstsins. Verkið var samið með stuðningi frá Tónskáldasjóði RÚV og STEFs og Tónskáldasjóði Bylgjunnar og Stöðvar 2.
Fimm lög við ljóð úr Óstöðvandi skilaboðum er sönglagaflokkur saminn var fyrir þessa tónleika. Lögin eru samin við fimm ljóð úr samnefndri ljóðabók Ásdísar Óladóttur, en titlar þeirra eru Hljóðin í húsinu, Við dyrnar, Í anddyrinu, Hamingjuleit og Svartþröstur. Verkið var samið með stuðningi frá Tónskáldasjóði RÚV og STEFs.
Herdís Anna Jónasdóttir sópran, hefur á ferli sínum öðlast mikla reynslu í flutningi á margs konar tónlist, jafnt ljóðasöng sem óperu, kirkjutónlist og belcanto, söngleikjum og samtímatónlist. Hún er búsett í Reykjavík og starfar sem söngkona og kennari.
Herdís bjó og starfaði lengi í Þýskalandi og hefur víða komið fram, s.s. með Sinfóníuhljómsveit Íslands, Kammersveit Reykjavíkur, Caput-hópnum, Sinfóníuhljómsveit Færeyja og Sinfóníuhljómsveitinni í Canberra, Ástralíu, sem og með minni kammerhópum og hljóðfæraleikurum, á ýmsum tónlistarhátíðum og í útvarpi og sjónvarpi, bæði hér- og erlendis. Fyrsta sólóplata Herdísar Nýir vængir kom út 2021, hvar hún ásamt Bjarna Frímanni Bjarnasyni flytur íslensk sönglög. Þá hefur hún tekið þátt í frumflutningi og upptökum ýmissa verka, m.a. Niður, þytur, brak eftir Hauk Tómasson við ljóð e. Sjón, og Ó eilífi foss eftir Kolbein Bjarnason við ljóð Steinunnar Sigurðardóttur. Vorið 2024 söng Herdís öll þrjú hlutverkin í frumflutningi óperunnar Óperan hundrað þúsund eftir Þórunni Grétu Sigurðardóttur og Kristínu Eiríksdóttur sem sýnd var við miklar vinsældir í Þjóðleikhúsinu.
Herdís stundaði söngnám við Tónlistarskólann á Ísafirði, Listaháskóla Íslands, Hanns Eisler tónlistarháskólann í Berlín og við óperustúdíó Óperunnar í Zürich. Árin 2013–2018 var hún fastráðin við Ríkisóperu Saarlands, Þýskalandi.
Herdís Anna hefur hlotið ýmsar viðurkenningar fyrir söng sinn, m.a. var hún valin Söngkona ársins í Saarbrücken vorið 2016, hlaut Grímuna fyrir túlkun sína á Víólettu við Íslensku óperuna árið 2019 og Íslensku tónlistarverðlaunin fyrir söng ársins 2022.
Helga Bryndís Magnúsdóttir lauk einleikara-og kennaraprófi frá Tónlistarskólanum í Reykjavík árið 1987 þar sem aðalkennari hennar var Jónas Ingimundarson. Hún stundaði síðan framhaldsnám við Konservatoríið í Vínarborg hjá Leonid Brumberg og Sibeliusarakademíuna í Helsinki, hjá Liisu Pohjola og Tuiju Hakkila.
Hún hefur leikið fjölmörg einleiksprógrömm, m.a. í Salnum í Kópavogi, á Listahátíð í Reykjavík og um allt land. Hún hefur auk þess leikið einleik með Sinfóníuhljómsveit Íslands, Sinfóníuhljómsveit Norðurlands og Sinfóníuhljómsveit áhugamanna, píanókonserta eftir Ravel, Poulenc, Brahms, Gershwin og Bach.
Helga Bryndís lék einleik í beinni sjónvarpsútsendingu á Norðurlöndunum í spurningaþættinum Kontrapunkti. Hún hefur leikið mikinn fjölda tónleika með fremstu söngvurum og hljóðfæraleikurum landsins, í kammermúsik ýmiskonar og er meðlimur í Caput hópnum. Hún hefur hljóðritað marga geisladiska í samstarfi við aðra en einnig gefið út disk með einleiksverkum eftir Robert Schumann, Carnaval og Fantasiu.
Halldór Smárason nam tónsmíðar við Listaháskóla Íslands og Manhattan School of Music, þá sem Fulbright-styrkþegi. Síðustu ár hefur Halldór verið athafnasamur á sviði samtímatónlistar. Meðal nýlegra samstarfshópa má nefna Sinfóníuhljómsveit Íslands, Orchester im Treppenhaus, Wild Up, Caput, Cauda Collective og Strokkvartettinn Sigga. Áður hefur Halldór m.a. unnið með Ensemble intercontemporain, Útvarpshljómsveitum Parísar og Stuttgart auk Oslo Sinfonietta.
Halldór hefur hlotið margvíslegar viðurkenningar fyrir tónsmíðar, m.a. sex vikna dvöl við listamannasetrið Civitella Ranieri á Ítalíu, listamannalaun og ýmsa styrki. Verk hans hafa verið flutt víðsvegar um Evrópu, Bandaríkin og Norðurlönd, til að mynda á tónlistarhátíðunum Manifest í París, Musiikin aika í Viitasaari, Nordic Music Days og Myrkum músíkdögum.
Mörg tónverka Halldórs hafa verið hljóðrituð. Þar má nefna hljómplötuna STARA sem Sono Luminus útgáfan gaf út árið 2020 með verkum hans, einleiksverk fyrir selló á plötu Sæunnar Þorsteinsdóttur árið 2019, einleiksverk fyrir píanó á plötu Anne H. Goldberg-Baldwin árið 2023 og verkið Húsið mitt, á hljómplötu Herdísar Önnu Jónasdóttur árið 2021. Bæði Húsið mitt og STARA voru tilnefnd til Íslensku tónlistarverðlaunanna.
Auk tónsmíða er Halldór virkur píanóleikari og útsetjari og hefur leikið inn á fjölmargar hljóðritanir.
Finnur Karlsson hefur verið kallaður “án nokkurs vafa eitt af eftirtekarverðari tónskáldum yngri kynslóðarinnar” og tónsmíðar hans hafa vakið athygli bæði á Íslandi og erlendis síðustu ár.
Verk hans hafa verið flutt af hópum og einleikurum eins og Barokkbandinu Brák, Cantoque Ensemble, Dönsku útvarpshljómsveitinni, Elju Ensemble, Jónasi Ásgeiri Ásgeirssyni, Kammersveit Reykjavíkur, Loadbang, Nordic Saxophone Collective, Sinfóníuhljómsveit Íslands, Strokkvartettinum Sigga, TAK og Århus Sinfonietta.
Harmonikkukonsert Finns, Accordion Concerto, sem skrifaður var fyrir Jónas Ásgeir Ásgeirsson og Elju Ensemble var valinn verk ársins á Íslensku tónlistarverðlaununum 2021. Verk Finns hafa tvisvar áður verið tilnefnd í þessum sama flokki. Fjórða hljómsveitarverk Finns, 'till heavens changed have their course’, sem samið var fyrir Dönsku útvarpshljómsveitina var valið sem framlag Danmarks Radio í alþjóðlegu samtímatónlistarkeppninni International Rostrum of Composers í Ungverjalandi 2018.
Finnur Karlsson lagði stund á nám í tónsmíðum við Listaháskóla Íslands og Royal Danish Academy of Music undir handleiðslu Hans Abrahamsen, Úlfars Inga Haraldssonar, Atla Ingólfssonar, Simon Løffler og Niels Rosing-Schow.
Á undan tónleikunum verður boðið upp á tónleikaspjall klukkan 13:00. Aðgangur á spjallið er ókeypis og öll velkomin.
03.05.2026 kl. 17:00 - Salurinn
FlytjendurCaput Ensemble
Pranav RanjitMA Tónsmíðar
The artistic practice of Pranav Ranjit (they/he), currently based in Reykjavík, Iceland, ranges from composition to free improvisation, from stillness to noise, from notated time to inner time, and from fragmentation to unity. Described as “forming a beautiful whole” by Estonian cultural magazine Sirp and “contemplative, at times evoking the breath of a resting dragon” by Czech publication KlasikaPlus, Ranjit’s compositions draw from perceptions of nature, folk traditions, and contrasts of fullness and silence.
A recipient of the Eisner Prize in the Creative Arts, Ranjit has studied in the United States, Estonia, Finland, and Iceland with Þuríður Jónsdóttir, Páll Ragnar Pálsson, Tõnu Kõrvits, Helena Tulve, Veli-Matti Puumala, and Ken Ueno. Ranjit’s music has been played across North America and Europe by Les Percussions de Strasbourg, YXUS Ensemble, violinist Dennis Kim, flautist Sarah Brady, and clarinetist Scott Lygate, among others, and has featured at festivals including Ostrava Days and Estonian Music Days.
Ranjit has participated in courses and masterclasses with composers including James MacMillan, Klaus Lang, Lisa Streich, Oscar Bianchi, and Du Yun. Largely self-taught as an electroacoustic composer and an improviser on often prepared pianos, they are active in the free improvisation and noise scenes in Reykjavík.
Portraitmyndir af útskriftarnemendum 2026 Tónlist
03.05.2026 kl. 17:00 - Salurinn
Nánari upplýsingar koma síðar
Portraitmyndir af útskriftarnemendum 2026 Tónlist
04.05.2026 kl. 15:00 - Bókasafn Kópavogs
Ertu byrjandi eða með áralanga reynslu af bróderíi? Viltu kannski rifja upp gamla takta og hitta aðra sem deila sama áhuga?
Þá gæti Bróderíklúbburinn hentað fyrir þig.
Bróderíklúbburinn hittist á mánudögum á Lindasafni í Núpalind 7 kl. 15:00.
Öll velkomin og heitt á könnunni.