Opið fyrir umsóknir

Stúlka að störfum í vinnuskóla Kópavogs
Stúlka að störfum í vinnuskóla Kópavogs

Umsóknir í vinnuskóla

Í sumar er búist við miklum fjölda nemenda í Vinnuskóla Kópavogs. Reiknað er með að um 1.500 nemendur sæki skólann sem er svipaður fjöldi og verið hefur síðustu ár.

Nemendur Vinnuskólans vinna við fjölbreytt störf í bænum og má þar nefna hreinsun bæjarlands og fjölmörg störf innan stofnanna og fyrirtækja.

Opnað hefur verið fyrir umsóknir í Vinnuskólann og verður opið fyrir umsóknir til 15. maí. Mikilvægt er að þeir nemendur sem eru á 16. og 17. aldursári sæki um fyrir þann tíma þar sem þá verður byrjað að raða í störf utan hefðbundinna hreinsunar starfa.

Að þessu sinni verður garðyrkja ekki eitt af verkefnum 17 ára nemenda og munu allir starfa á stofnunum eða fyrirtækjum sem hafa óskað eftir samstarfi við Vinnuskólann

Einnig er gerð sú breyting á starfi þeirra að nú velja þau ekki tímabil til að vinna á heldur veður unnið í samráði við yfirmenn á hverjum vinnustað.

Boðað verður til foreldrafundar áður en Vinnuskólinn hefur störf og verður hann á vefformi og skipt eftir aldri nemenda.

Dagsetning á honum verður auglýst síðar.