Bæjarráð

3248. fundur 05. mars 2026 kl. 08:20 - 13:37 í bæjarstjórnarsal, Hábraut 2
Fundinn sátu:
  • Orri Vignir Hlöðversson formaður
  • Hjördís Ýr Johnson varaformaður
  • Andri Steinn Hilmarsson aðalmaður
  • Theódóra S Þorsteinsdóttir aðalmaður
  • Helga Jónsdóttir aðalmaður
  • Bergljót Kristinsdóttir áheyrnarfulltrúi
  • Sigurbjörg Erla Egilsdóttir áheyrnarfulltrúi
  • Ásdís Kristjánsdóttir bæjarstjóri
Starfsmenn
  • Pálmi Þór Másson bæjarritari
Fundargerð ritaði: Pálmi Þór Másson bæjarritari
Dagskrá

Erindi og umsagnir frá starfsmönnum

1.2603364 - Minn Kópavogur - ný þjónustugátt

Umbóta- og þróunarstjóri kynnir Minn Kópavog - nýja þjónustugátt.
Kynning og umræður.

Gestir viku af fundi kl. 8:41

Gestir

  • Védís Hervör Árnadóttir umbóta - og þróunarstjóri - mæting: 08:15
  • Jakob Sindri Þórsson sérfræðingur - mæting: 08:15

Erindi og umsagnir frá starfsmönnum

2.26023222 - Menningamiðstöð í efri byggðum Kópavogs og Smáralind

Frá umbóta- og þróunarstjóra, dags. 03.03.2026, kynning á menningarmiðstöð í efri byggðum Kópavogs og Smáralind. Lagt er til við bæjarráð:



1. Að samþykkja tillögu að staðsetningu menningarmiðstöðvar í efri byggðum,

ásamt því að veita þróunar- og umbótastjóra umboð til áframhaldandi

mótunar og þróunar verkefnisins í samræmi við kynnta tillögu.



2. Að veita umbóta- og þróunarstjóra heimild til undirritunar leigusamnings við

Heima vegna leigurýmis í Smáralind, ásamt umboði til áframhaldandi þróunar

verkefnisins í samræmi við kynnta tillögu.

Kynning og umræður.

Gestir viku af fundi kl. 10.34.

Fundarhlé hófst kl. 10:35, fundi fram haldið kl. 10:45.

Bæjarráð samþykkir með þremur atkvæðum og hjásetu Helgu Jónsdóttur og Theódóru S. Þorsteinsdóttur tillögu að staðsetningu menningarmiðstöðvar í efri byggðum, ásamt því að veita þróunar- og umbótastjóra umboð til áframhaldandi mótunar og þróunar verkefnisins í samræmi við kynnta tillögu. Tillögunni vísað til staðfestingar bæjarstjórnar.

Bæjarráð samþykkir með þremur atkvæðum, gegn atkvæði Helgu Jónsdóttur og hjásetu Theódóru S. Þorsteinsdóttur að veita umbóta- og þróunarstjóra heimild til undirritunar leigusamnings við Heima vegna leigurýmis í Smáralind, ásamt umboði til áframhaldandi þróunar verkefnisins í samræmi við kynnta tillögu. Tillögunni vísað til staðfestingar bæjarstjórnar.

Fundarhlé hófst kl. 10:51, fundi fram haldið kl. 12:51

Andri Steinn Hilmarsson vék af fundi kl. 11:30 og tók Ásdís Kristjánsdóttir sæti varamanns í hans stað.

Bókun:
"Við áteljum að þessi mál séu lögð fyrir sem eitt. Annars vegar er ósk um heimild til mjög mikillar fjárbindingar með undirritun samnings við eigendur Smáralindar um leigu til 10 ára. Til þess að afgreiða þá tillögu telja undirritaðar nauðsynlegt að fyrir liggi mun skýrari upplýsingar en nú er. T.d. er áætlun um rekstrarkostnað alls ekki undirbyggð. Ljóst þarf að vera hvaða raunverulegur stofn- og rekstrarkostnaður fylgi samningum um menningarstarfsemi Kópavogsbæjar á nýjum stað. Enginn rökstuðningur er fyrir því af hverju tímabært er að leggja í þessa fjárfestingu og opna aðstöðu í Smáralind áður en bókasafn í efri byggðum getur orðið að raunveruleika. Víð óskum eindregið eftir fresti til að kanna þetta mál betur m.a. hvort aðrir aðilar á sama svæði hafi hug á að bjóða Kópavogsbæ aðstöðu. Í hinu málinu er samstaða um nauðsyn þess að almenningsbókasafn, sem verið getur vettvangur menningarviðburða, rísi í efri byggðum. Ekki er ágreiningur um staðsetningu í Kórnum ef greinargerð, sem við óskum eftir frá forstöðumanni bókasafns bæjarins staðfestir að 175 fermetrar dugi til þess að þjóna þeim markmiðum sem að hefur verið stefnt í efri byggðum."

Helga Jónsdóttir
Theódóra S. Þorsteinsdóttir
Sigurbjörg E. Egilsdóttir
Bergljót Kristinsdóttir


Bókun:
"Með menningarkjarna í Kórnum og samstarfi við Smáralind hefur skapast einstakt tækifæri til að færa menningarstarfsemi nær íbúum. Fram undan er fjölgun íbúa á svæðinu og mikilvægt að mæta þörfum þeirra. Að mati meirihlutans eru undirliggjandi gögn bæði vel ígrunduð og faglega fram sett af starfsmönnum bæjarins. Meirihlutinn sér því ekki tilefni til annars en að styðja í einu og öllu afgreiðslu Menningar- og mannlífsnefndar sem var samþykkt samhljóða."

Hjördís Ýr Johnson
Orri V. Hlöðversson
Ásdís Kristjánsdóttir


Bókun:
"Enn á ný kemur valdhroki og yfirgangur, sem meirihluti hefur sýnt minnihluta á þessu kjörtímabili skýrt fram, þegar neitað er um eðlilegan frest til að kynna sér stórmál með fullnægjandi hætti. Um er að ræða mjög háa og langvarandi fjárbindingu með 10 ára leigusamningi. Með málsmeðferðinni er vegið að umræðu, aðhaldi og ábyrgri ákvörðunartöku.

Rangar áherslur felast í forgangsröðuninni sem meirihlutinn leggur til. Með henni verður aðstaða í Smáralind, sem hvorki var rædd í aðdraganda kosninga né eftir þær, forgangsmál og opnuð 2027 en aðstaða í efri byggðum sem allir hafa verið sameinaðir um bíður til 2029. Sú röðun er m.a.s. í hróplegu ósamræmi við málefnasamning meirihlutans þar sem segir að stuðla skuli að því að menningakjarnar verði starfræktir í efri byggðum samhliða þungamiðju starfseminnar við Hamraborg og MEKÓ.

Að óbreyttu teljum við ekki forsvaranlegt að afgreiða málið. Skýr og rökstudd gögn um raunverulegan stofn- og rekstrarkostnað, forsendur kostnaðaráætlana og hvort aðrir raunhæfir valkostir hafi verið kannaðir þurfa að liggja fyrir."

Helga Jónsdóttir
Theódóra S. Þorsteinsdóttir
Sigurbjörg E. Egilsdóttir
Bergljót Kristinsdóttir


Bókun:
"Meirihluti vísar ásökunum um valdhroka á bug enda er verið að vinna út frá einróma samþykkt Menningar- og mannlífsnefndar. Ákvörðunin er algjörlega í samræmi við málefnasamning meirihluta enda er með henni verið að stuðla að því að menningarkjarni verði  starfræktur í efri byggðum. Skipulagsferlið er fram undan og allt kapp verður lagt á að flýta þeirri vinnu þannig að hægt verði að opna menningarkjarna í Kórnum fyrir 2029. Hér er því stigið stórt skref í átt að enn blómlegra menningarlífi í Kópavogi."

Hjördís Ýr Johnson
Orri V. Hlöðversson
Ásdís Kristjánsdóttir
Fylgiskjöl:

Gestir

  • Sindri Sveinsson áhættu og fjárstýringarstjóri - mæting: 08:43
  • Védís Hervör Árnadóttir umbóta - og þróunarstjóri - mæting: 08:43

Erindi og umsagnir frá starfsmönnum

3.2602909 - Loftslagsstefna innri rekstrar Kópavogsbæjar

Frá umhverfissviði, lögð fram drög að loftlagsstefnu innri rekstrar Kópavogsbæjar. Lagt er til við bæjarráð að samþykkja sviðsmynd B. Jafnframt er lagt til að setja fram aðgerðaráætlun til tveggja ára í senn.
Frestað til næsta fundar.

Erindi og umsagnir frá starfsmönnum

4.2602652 - Dalvegur 1. Lóðarvilyrði

Frá umhverfissviði, dags. 27.02.2026, lögð fram til samþykktar bæjarráðs drög að lóðarvilyrði.
Frestað til næsta fundar.

Erindi og umsagnir frá starfsmönnum

5.26023462 - Hallarhvarf 1-7. Beiðni um heimild til framsals

Frá umhverfissviði, dags. 02.03.2026, lögð fram beiðni um heimild til framsals á lóðunum Hallarhvarfi 1-3 og Hallarhvarfi 5-7 til verkefnafélagsins Hallahvarf ehf.
Bæjarráð samþykkir með tveim atkvæðum og hjásetu Helgu Jónsdóttur framsal á lóðunum Hallarhvarfi 1-3 og Hallarhvarfi 5-7 til verkefnafélagsins Hallahvarfs ehf. og vísar til staðfestingar bæjarstjórnar.

Erindi og umsagnir frá starfsmönnum

6.2411684 - Ósk um endurnýjun samstarfssamnings Kópavogsbæjar og Skógræktarfélags Kópavogs

Frá umhverfissviði, dags. 02.03.2026, lögð fram umsögn um endurnýjum samstarfssamning Kópavogsbæjar og Skógræktarfélag Íslands.
Frestað til næsta fundar

Ýmis erindi

7.26023364 - Áskorun til sveitastjórna frá SÍL

Frá Siglingasambandi Íslands, dags. 21.02.2026, lögð fram áskorun til sveitarfélagsins.
Frestað til næsta fundar.

Ýmis erindi

8.2603283 - Aðalfundur Lánasjóðs sveitarfélaga 2026

Frá Lánasjóði sveitarfélaga, dags. 02.03.2026, lagt fram erindi varðandi aðalfund sjóðsins sem haldinn verður 20.mars 2026.
Lagt fram.


Theódóra S. Þorsteinsdóttir vék af fundi kl. 13:13.

Fundargerðir nefnda

9.2602021F - Leikskólanefnd - 177. fundur frá 26.02.2026

Fundargerð í fimm liðum.
Lagt fram.
  • 9.3 25111339 Eftirlit með einkaleikskólum og þjónustureknum leikskólum - Ylur
    Ytra eftirlit með Waldorf leikskólanum Yl lagt fram til samþykktar. Niðurstaða Leikskólanefnd - 177 Leikskólanefnd samþykkir úttekt leikskóladeildar.
  • 9.4 25111337 Eftirlit með einkaleikskólum og þjónustureknum leikskólum - Kór
    Ytra eftirlit með Heilsuleikskólanum Kór lagt fram til samþykktar. Niðurstaða Leikskólanefnd - 177 Leikskólanefnd samþykkir úttekt leikskóladeildar.

Fundargerðir nefnda

10.2602004F - Lýðheilsu- og íþróttanefnd - 10. fundur frá 26.02.2026

Fundargerð í sjö liðum.
Lagt fram.
  • 10.6 2511188 Styrkbeiðni vegna ritunar á sögu Breiðabliks í tilefni 80 ára afmælis félagsins
    Tekið fyrir erindi frá Aðalstjórn Breiðabliks, dags. 31.10 2025, þar sem óskað er eftir styrk að upphæð 6 milljónir króna til ritunar sögu félagsins. Menningar- og mannlífsnefnd vísaði beiðninni til lýðheilsu- og íþróttanefndar á fundi sínum 4. febrúar. Niðurstaða Lýðheilsu- og íþróttanefnd - 10 Lýðheilsu- og íþróttanefnd vísar málinu til bæjarráðs á þeim forsendum að nefndin hefur ekki fjárheimildir til að ráðstafa í verkefnið. Niðurstaða Bæjarráð samþykkir að vísa erindinu til afgreiðslu bæjarritara.

Fundargerðir nefnda

11.2602022F - Skipulags- og umhverfisráð - 25. fundur frá 02.03.2026

Fundargerð í sex liðum.
Vísað til staðfestingar bæjarstjórnar.
  • 11.2 25061878 Naustavör 13. Leikskóli. Breytt deiliskipulag.
    Lögð fram að nýju tillaga umhverfissviðs dags. 24. október 2025, uppf. 20. febrúar 2026 að breytingu á deiliskipulaginu Bryggjuhverfi við Kársnes fyrir lóðina nr. 13 við Naustavör. Í breytingunni felst stækkun á byggingarreit fyrirhugaðs leikskóla á lóðinni um 312 m², úr 900 m² í 1.212 m², stækkun lóðarinnar um 285 m² úr 4.600 m² í 4.885 m², hækkun gólfkóta byggingarreits úr 4.5 m.y.s í 5.3 m.y.s og hækkun byggingarreits úr 4m í 6m. Einnig er lögð til ný göngutenging austan lóðarinnar ásamt því að fyrirkomulag gatnamóta norðvestan lóðarinnar er breytt, í stað fyrirhugaðs hringtorgs verið T-gatnamót. Uppdrættir dags. 24. október 2025, uppf. 20. febrúar 2026. Tillagan var grenndarkynnt frá 12. desember 2025 til 15. janúar 2026, umsagnir og athugasemdir bárust á kynningartíma. Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa þann 23. febrúar 2026 var erindinu vísað til skipulags- og umhverfisráðs. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 20. febrúar 2026.
    Elín Mjöll Lárusdóttir verkefnastjóri tók sæti á fundinum undir þessum lið.
    Niðurstaða Skipulags- og umhverfisráð - 25 Samþykkt með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 20. febrúar 2026. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar. Niðurstaða Vísað til staðfestingar bæjarstjórnar.
  • 11.4 2208454 Kársnes þróunarsvæði. Rammahluti aðalskipulags.
    Lagt fram að nýju erindi Skipulagsstofnunar dags. 3. febrúar 2026 varðandi breytingu á aðalskipulagi Kópavogs vegna rammahluta aðalskipulags fyrir vestanvert Kársnes. Einnig eru lögð fram drög að svarbréfi til Skipulagsstofnunar dags. 27. febrúar 2026 með viðbrögðum skipulagsfulltrúa við þeim athugasemdum sem gerðar eru ásamt uppfærðum rammahluta dags. 29. maí 2025, uppf. í febrúar 2026 m.t.t. erindis Skipulagsstofnunar. Tillögunni fylgir greining á áhrifum reitsins á stofnvegakerfið í samgöngulíkani höfuðborgarsvæðisins (SLH) dags. 16. maí 2025, sem VSÓ ráðgjöf vann samkvæmt beiðni Vegagerðarinnar, ásamt umferðargreiningu dags. 13. desember 2024.
    Niðurstaða Skipulags- og umhverfisráð - 25 Samþykkt með áorðnum breytingum dags. í febrúar 2026 með sex atkvæðum Hjördísar Ýrar Johnson, Andra Steins Hilmarssonar, Gunnars Sæs Ragnarssonar, Leós Snæs Péturssonar, Helgu Jónsdóttur og Hákonar Gunnarssonar. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.
    Kristinn Dagur Gissurarson sat hjá við afgreiðslu málsins.
    Niðurstaða Vísað til staðfestingar bæjarstjórnar.
  • 11.6 26011636 Dimmuhvarf 10. Breytt deiliskipulag.
    Lögð fram að nýju umsókn Bjarna Þorsteinssonar arkitekts dags. 20. janúar 2026 f.h. lóðarhafa lóðarinnar nr. 10 við Dimmuhvarf um breytingu á deiliskipulagi. Í breytingunni felst uppskipting lóðarinnar í tvær lóðir, hvor um sig 1773,5 m², einbýlishúsi á hvorri lóð og breyttri aðkomu að lóðunum. Núverandi stærð lóðar er skráð 3.547 m². Uppdrættir dags. 20. janúar 2026. Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa þann 23. febrúar 2026 var erindinu vísað til skipulags- og umhverfisráðs. Jafnframt er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 26. febrúar 2026. Niðurstaða Skipulags- og umhverfisráð - 25 Synjað með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 26. febrúar 2026 með sex atkvæðum Hjördísar Ýrar Johnson, Andra Steins Hilmarssonar, Gunnars Sæs Ragnarssonar, Leós Snæs Péturssonar, Helgu Jónsdóttur og Hákonar Gunnarssonar. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar. Kristinn Dagur Gissurarson sat hjá við afgreiðslu málsins. Niðurstaða Vísað til staðfestingar bæjarstjórnar.

Fundargerðir nefnda

12.2602032F - Innkaupanefnd - 14. fundur frá 02.03.2026

Fundargerð í þremur liðum.
Lagt fram.

Fundargerðir nefnda

13.2602019F - Menningar- og mannlífsnefnd - 12. fundur frá 03.03.2026

Fundargerð í fimm liðum.
Lagt fram.
  • 13.1 26023222 Bókasafn í efri byggðum
    Samkvæmt bókun menningar- og mannlífsnefndar, bæjarráðs og bæjarstjórnar um nýja menningarmiðstöð í Smáralind var gerð þarfagreining á bókasafni í efri byggðum sem hér er lögð fram. Niðurstaða Menningar- og mannlífsnefnd - 12 Menningar- og mannlífsnefnd þakkar Ármanni Halldórssyni deildarstjóra umhverfissviðs kynningu á tillögu að staðsetningu menningarkjarna/bókasafns í efri byggðum út frá þarfagreiningu. Nefndin fagnar niðurstöðunni og samþykkir hana fyrir sitt leyti og vísar henni til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar. Nefndin telur að með nýrri menningarmiðstöð í Smáralind og nýjum menningarkjarna/bókasafni í Kórnum sé stuðlað að jöfnu aðgengi allra íbúa að menningarstarfsemi í Kópavogi, eins og menningarstefna bæjarins kveður á um. Nefndin leggur áherslu á aðkomu menningar- og mannlífsnefndar og starfsmanna menningarmála bæjarins að áframhaldandi mótun og þróun verkefnisins. Niðurstaða Vísað er til afgreiðslu máls nr. 2.

Fundargerðir nefnda

14.2602028F - Menntaráð - 158. fundur frá 03.03.2026

Fundargerð í fimm liðum.
Lagt fram.

Fundargerðir nefnda

15.2602029F - Ungmennaráð - 57. fundur frá 23.02.2026

Fundargerð í tveimur liðum.
Lagt fram.

Fundargerðir nefnda

16.2603523 - Fundargerð 14. fundar stefnuráðs frá 27.02.2026

Fundargerð 14. fundar stefnuráðs frá 27.02.2026.
Lagt fram.

Fundargerðir nefnda

17.2603576 - Fundargerð 421. fundar stjórnar Strætó frá 13.02.2026

Fundargerð 421. fundar stjórnar Strætó frá 13.02.2026.
Lagt fram.

Erindi frá bæjarfulltrúum

18.2603579 - Frá bæjarfulltrúum Viðreisnar, Pírata, Samfylkingar og Vina Kópavogs, ósk um að erindi um launaþróun greiðslna til myndlistarmanna komi á dagskrá bæjarráðs

Frá bæjarfulltrúum Viðreisnar, Pírata, Samfylkingar og Vina Kópavogs, dags. 03.03.2026 lagt fram erindi um að launaþróun greiðslna til myndlistarmanna í samræmi við verklagsreglur Kópavogsbæjar og taxta Sambands íslenskra myndlistarmanna.
Frestað til næsta fundar.

Fundi slitið - kl. 13:37.