Beint í efni
Til baka í nefndaryfirlit

Bæjarráð - 3019. fundur

Fjarfundur - Microsoft Teams

Mætt til fundar

Nefndarmenn

  • Birkir Jón Jónsson - formaður
  • Karen Elísabet S Halldórsdóttir - aðalmaður
    Boðaði forföll
    Ármann Kristinn Ólafsson - varamaður
    Sat fundinn í staðinn
  • Hjördís Ýr Johnson - aðalmaður
  • Pétur Hrafn Sigurðsson - aðalmaður
  • Theódóra S Þorsteinsdóttir - aðalmaður
  • Sigurbjörg Erla Egilsdóttir - áheyrnarfulltrúi

Starfsmenn

  • Pálmi Þór Másson - bæjarlögmaður

Ritari

  • Pálmi Þór Másson

Dagskrá fundar

Erindi og umsagnir frá starfsmönnum

01

Mánaðarskýrslur 2020

Frá bæjarritara, lögð fram mánaðarskýrsla vegna starfsemi í ágúst.

Lagt fram.

Erindi og umsagnir frá starfsmönnum

02

Markavegur 7. Umsókn um lóð undir hesthús

Frá bæjarlögmanni, dags. 12. október, lögð fram umsókn um hesthúsalóðina Markarveg 7 frá Rafni A. Sigurðssyni. Lagt er til að bæjarráð samþykki úthlutun lóðarinnar til umsækjanda.

Bæjarráð vísar málinu til afgreiðslu bæjarstjórnar

Erindi og umsagnir frá starfsmönnum

03

Markavegur 8. Umsókn um lóð undir hesthús

Frá bæjarlögmanni, dags. 12. október, lögð fram umsókn um hesthúsalóðina Markarveg 8 frá Hannesi Sigurjónssyni. Lagt er til að bæjarráð samþykki úthlutun lóðarinnar til umsækjanda.

Bæjarráð vísar málinu til afgreiðslu bæjarstjórnar

Erindi og umsagnir frá starfsmönnum

04

Lækjarbotnar/skíðaskáli umsókn um styrkveitingu félaga- og félagasamtaka til greiðslu fasteignaskatts

Frá lögfræðideild, dags. 9. október, lögð fram tillaga að afgreiðslu umsóknar Glímufélagsins Ármann um styrk til greiðslu fasteignaskatts. Lagt er til að styrkumsókn að upphæð kr. 1.473.983,-. verði samþykkt enda fellur starfsemi félagsins að reglum Kópavogsbæjar um styrkveitingar.

Bæjarráð samþykkir að veita umbeðinn styrk.

Erindi og umsagnir frá starfsmönnum

05

Útboð - Félagsleg heimaþjónusta

Frá sviðsstjóra velferðarsviðs og deildarstjóra öldrunarþjónustu, dags. 8. október, lagðar fram niðurstöður útboðs í ræstingar fyrir félagslega heimaþjónustu í Kópavogi, þar sem lagt er til að leitað verði samninga við lægstbjóðanda Daga hf.

Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að gengið verði til samninga við lægstbjóðanda Daga hf.

Erindi og umsagnir frá starfsmönnum

06

Fyrirspurn bæjarfulltrúa Theódóru S. Þorsteinsdóttur um hvenær samgöngustefna verði tekin til afgreiðslu bæjarstjórnar

Frá bæjarstjóra, dags. 13. október, lagt fram svar við fyrirspurn um hvenær samgöngustefna bæjarins verði tekin til afgreislu bæjarstjórnar, þar sem lagt er til að starfshópurinn ljúki störfum sínum og leggi samgöngustefnuna fyrir bæjarráð og bæjarstjórn til afgreiðslu.

Lagt fram.

Ýmis erindi

07

Svar við ósk eftir aðkomu Sambands íslenskra sveitarfélaga að Framfaravoginni.

Frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga, dags. 6. október, lagt fram svar við erindi Kópavogsbæjar um aðkomu Sambandsins að Framfaravoginni frá 17. september sl.

Lagt fram.

Fundargerð

08

Afgreiðslur byggingarfulltrúa - 301. fundur frá 08.10.2020

Fundargerð í 13 liðum.

Bæjarráð vísar erindinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.

Fundargerðir nefnda

09

Fundargerðir Barnaverndarnefndar

Fundur nr. 111.

Lagt fram.

Fundargerðir nefnda

10

Fundargerð 433. fundar stjórnar Sorpu bs. frá 25.09.20

Fundargerð í 5 liðum.

Lagt fram.

Fundargerðir nefnda

11

Fundargerð 502. stjórnarfundar SSH frá 21.09.2020

Fundargerð í 6 liðum.

Lagt fram.

Fundargerðir nefnda

12

Fundargerð 503 stjórnarfundar. SSH frá 23.09.20

Fundargerð í 5 liðum.

Lagt fram.

Fundargerðir nefnda

13

Fundargerð 504. stjórnarfundar SSH frá 25.09.20

Fundargerð í 1 lið.

Lagt fram.

Fundargerðir nefnda

14

Fundargerð 505. stjórnarfundar SSH frá 28.09.20

Fundargerð í 2 liðum.

Lagt fram.

Fundargerðir nefnda

15

Fundargerð 506. stjórnarfundar SSH frá 01.10.20

Fundargerð í 2 liðum.

Lagt fram.

Fundargerðir nefnda

16

Fundargerð 328. fundar stjórnar Strætó frá 25.09.20

Fundargerð í 6 liðum.

Lagt fram.

Fundargerðir nefnda

17

Fundargerð 329. fundar stjórnar Strætó frá 09.10.20

Fundargerð í 5 liðum.

Lagt fram.

Fundargerðir nefnda

18

Fundargerðir Velferðarráðs

Fundargerð í 5 liðum.

Lagt fram.

Erindi frá bæjarfulltrúum

19

Ósk bæjarfulltrúa Pírata um að fá kynningu á verkefninu Nordic Transition Partnership for Climate Neutral Cities 2030

Frá bæjarfulltrúa Sigurbjörgu Erlu Egilsdóttur, ósk um að fá kynningu í bæjarráði á verkefninu Nordic Transition Partnerhip for Climate Neutral Cities 2030 sem bæjarráð samþykkti á fundi sínum þann 24. september sl. að taka þátt í.

Kynning.

Erindi frá bæjarfulltrúum

20

Ósk bæjarfulltrúa Pírata um mat á hvort innkaup á rafverktakaþjónustu fyrir 17. júní hátíðarhöldin hafi verið í samræmi við innkaupareglur

Frá Sigurbjörgu Erlu Egilsdóttur, óskað er eftir að fá mat á því hvort innkaup á rafverktakaþjónustu fyrir 17. júní hátíðarhöldin hafi verið í samræmi við innkaupareglur Kópavogsbæjar, en í lokaskýrslu verkefnastjóra hátíðarhaldanna kemur fram að aðeins hafi verið óskað eftir tilboði frá einum rafverktaka.

Bæjarráð vísar erindinu til umsagnar bæjarlögmanns.