Bæjarráð

3104. fundur 27. október 2022 kl. 08:15 - 12:24 í bæjarstjórnarsal, Hábraut 2
Fundinn sátu:
  • Orri Vignir Hlöðversson formaður
  • Hjördís Ýr Johnson varaformaður
  • Andri Steinn Hilmarsson aðalmaður
  • Theódóra S Þorsteinsdóttir aðalmaður
  • Helga Jónsdóttir aðalmaður
  • Bergljót Kristinsdóttir áheyrnarfulltrúi
  • Sigurbjörg Erla Egilsdóttir áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Pálmi Þór Másson bæjarritari
Fundargerð ritaði: Pálmi Þór Másson bæjarritari
Dagskrá

Erindi og umsagnir frá starfsmönnum

1.2207051 - Mánaðarskýrslur og uppgjör

Frá sviðsstjóra fjármálasviðs, lagðar fram mánaðarskýrslur fyrir janúar - ágúst 2022.
Kynning.

Gestir

  • Ingólfur Arnarson - mæting: 08:15
  • Kristín Egilsdóttir sviðsstjóri fjármálasviðs - mæting: 08:15

Erindi og umsagnir frá starfsmönnum

2.2210628 - Fjárhagsáætlun 2023

Frá bæjarstjóra, lögð fram drög að fjárhagsáætlun Kópavogsbæjar og stofnana fyrir árið 2023.
Bæjarráð frestar erindinu.

Erindi og umsagnir frá starfsmönnum

3.2210629 - Þriggja ára fjárhagsáætlun 2024-2026

Frá bæjarstjóra, lögð fram drög að þriggja ára fjárhagsáætlun 2024-2026.
Bæjarráð frestar erindinu.

Erindi og umsagnir frá starfsmönnum

4.2203355 - Göngu- og hjólastígur meðfram Lindarvegi

Frá bæjarlögmanni, dags. 25.10.2022, lögð fram umsögn um uppfærða verkáætlun deildarstjóra gatnadeildar frá 29.08.2022.
Umræður.

Gestir

  • Ása A. Kristjánsdóttir - mæting: 09:57
  • Ásthildur Helgadóttir - mæting: 09:57

Erindi og umsagnir frá starfsmönnum

5.2210331 - Kópavogur Menningarborg Evrópu 2028

Frá forstöðumanni menningarmála, dags. 11.10.2022, lögð fram beiðni um að Kópavogur sæki um að verða Menningarborg Evrópu 2028. Bæjarráð frestaði erindinu þann 13.10 og aftur á fundi sínum þann 20.10.2022. Á þeim fundi var óskað eftir umsögn lista- og menningarráðs.

Lista- og menningarráð kom saman á aukafundi þann 24.10.2022 og voru eftirfarandi bókanir lagðar fram:

Umsókn í forval þess efnis að Kópavogur verði ein af Menningarborgum Evrópu árið 2028 er spennandi verkefni.

Lista- og menningarráð mælir með því að haldið sé áfram með umsóknina þar sem hún er þegar langt komin, enda lítur það svo á að vinnan muni nýtast bæjarfélaginu hvort sem af verður eða ekki.

Verkefnið kom inn með mjög skömmum fyrirvara og því þarf að hafa hraðar hendur. Lista- og menningarráð gerir sér grein fyrir að þetta er viðamikið og kostnaðarsamt verkefni og því mikilvægt að nota næstu mánuði til að kanna með hvaða hætti hægt væri að fullfjármagna það.

Gestur á fundinum frá kl. 08:15-10:00 var María Kristín Gylfadóttir frá North Consulting.


Bókun um tillögu um að Kópavogur sæki um að vera „Menningarborg Evrópu“

Áheyrnarfulltrúi Samfylkingarinnar í lista- og menningarráði vill leggja fram eftirfarandi bókun:

Samkvæmt erindisbréfi fulltrúa í lista- og menningarráði og bæjarmálasamþykkt er skýrt að ráðið fer með stefnumörkun í menningarmálum bæjarins. Það er ólíðandi og ámælisvert að ráðið sé sniðgengið með öllu þegar lagt er til við bæjarráð að bærinn sæki um að vera Menningarborg Evrópu og ekki einu sinni upplýst um málið. Samfylkingin setur sig ekki upp á móti hugmyndinni en hefði kosið lengri tímafrest og betri stjórnsýslu í ferlinu.

Virðingarfyllst,

Margrét Tryggvadóttir
Áheyrnarfulltrúi Samfylkingarinnar

Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að ekki sé tímabært að taka þátt í verkefninu Menningarborg Evrópu að þessu sinni.

Bókun bæjarráðs:
„Verkefnið er áhugavert en umfangsmikið og flókið bæði efnislega og fjárhagslega. Slík ákvörðun þarf mikinn og ígrundaðan undirbúning sem ekki var unnt að viðhafa að þessu sinni.“

Erindi og umsagnir frá starfsmönnum

6.2210553 - Ósk bæjarfulltrúa Theódóru S. Þorsteinsdóttur að farið verði yfir stofnframkvæmdir fyrir árið 2022 í bæjarráði

Fjármálastjóri og sviðsstjóri umhverfisviðs fara yfir stofnframkvæmdir umhverfissviðs 2022.
Kynning.

Gestir

  • Kristín Egilsdóttir - mæting: 09:20
  • Ingólfur Arnarson - mæting: 09:20
  • Ásthildur Helgadóttir - mæting: 09:20

Ýmis erindi

7.2210690 - Tilkynning um ágóðahlutagreiðslu 2022

Frá Eignarhaldsfélaginu Brunabótafélag Íslands, dags. 21.10.2022, lögð fram tilkynning um ágóðahlutagreiðslu 2022.
Lagt fram.
Fylgiskjöl:

Ýmis erindi

8.2210770 - Styrkbeiðni vegna gerð barnabókarefnis á táknmáli

Frá Félag heyrnarlausra, dags. 22.10.2022, lögð fram beiðni um styrk vegna þýðingar barnabókmennta yfir á táknmál.
Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að vísa erindinu til afgreiðslu bæjarritara.
Fylgiskjöl:

Ýmis erindi

9.2210621 - Styrkbeiðni til að auka fræðslu og þjónustu í sveitarfélaginu um ADHD og fyrir fólk með ADHD

Frá ADHD samtökunum, dags. 19.10.2022, lög fram styrkbeiðni til að auka fræðslu og þjónustu í sveitarfélaginu um ADHD og fyrir fólk með ADHD.
Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að vísa erindinu til umsagnar sviðsstjóra menntasviðs.

Ýmis erindi

10.2210803 - Til umsagnar tillaga til þingsályktunar um úttekt á tryggingavernd í kjölfar náttúruhamfara, 231. mál

Frá efnahags- og viðskiptanefnd Alþingis, lagt fram til umsagnar tillaga til þingsályktunar um úttekt á tryggingavernd í kjölfar náttúruhamfara, 231. mál.

Bæjarráð vísar málinu til afgreiðslu bæjarlögmanns.

Fundargerðir nefnda

11.2210006F - Afgreiðslur byggingarfulltrúa - 354. fundur frá 13.10.2022

Fundargerð í fimm liðum.
Lagt fram.

Fundargerðir nefnda

12.2210017F - Lista- og menningarráð - 144. fundur frá 24.10.2022

Fundagerð í einum lið.
Lagt fram.

Fundargerðir nefnda

13.2210013F - Leikskólanefnd - 145. fundur frá 20.10.2022

Fundargerð í níu liðum.
Lagt fram.

Fundargerðir nefnda

14.2210016F - Velferðarráð - 108. fundur frá 24.10.2022

Fundargerð í níu liðum.
Framlagningu fundargerðarinnar frestað til næsta fundar.

Fundarhlé hófst kl. 11:33, fundi fram haldið kl. 11:47

Fundargerðir nefnda

15.2210673 - Fundargerð 914. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga frá 12.10.2022

Fundargerð 914. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga frá 12.10.2022
Lagt fram.

Fundargerðir nefnda

16.2210561 - Fundargerð 361. fundar stjórnar Strætó frá 14.10.2022

Fundargerð 361. fundar stjórnar Strætó frá 14.10.2022
Lagt fram.

Erindi frá bæjarfulltrúum

17.2210821 - Ósk um umfjöllun og ákvörðun um uppsögn móttökustoðvar Sorpu á Dalvegi

Frá bæjarfulltrúa Theódóru S. Þorsteinsdóttur, lagt fram erindi varðandi ákvörðun um uppsögn móttökustoðvar Sorpu á Dalvegi
Umræður.

Erindi frá bæjarfulltrúum

18.2210822 - Fyrirspurn bæjarfulltrúa varðandi heimildir sveitarfélagsins séu til að stýra lofthelginni yfir Kópavogi.

Frá bæjarfulltrúa Andra Stein Hilmarssyni, lögð fram fyrirspurn varðandi heimildir sveitarfélagsins til að stýra lofthelginni yfir Kópavogi.
Bæjarráð vísar erindinu til umsagnar bæjarlögmanns.

Fundi slitið - kl. 12:24.