Bæjarráð

3245. fundur 05. febrúar 2026 kl. 08:15 - 12:41 í bæjarstjórnarsal, Hábraut 2
Fundinn sátu:
  • Orri Vignir Hlöðversson formaður
  • Hjördís Ýr Johnson, aðalmaður boðaði forföll og Elísabet Berglind Sveinsdóttir varamaður, sat fundinn í hans stað.
  • Andri Steinn Hilmarsson aðalmaður
  • Theódóra S Þorsteinsdóttir aðalmaður
  • Helga Jónsdóttir aðalmaður
  • Bergljót Kristinsdóttir áheyrnarfulltrúi
  • Sigurbjörg Erla Egilsdóttir, aðalmaður boðaði forföll og Indriði Ingi Stefánsson vara áheyrnarfulltrúi, sat fundinn í hans stað.
Starfsmenn
  • Ásdís Kristjánsdóttir bæjarstjóri
  • Pálmi Þór Másson bæjarritari
Fundargerð ritaði: Pálmi Þór Másson bæjarritari
Dagskrá

Erindi og umsagnir frá starfsmönnum

1.25112715 - Ósk bæjarfulltrúa, Theódóru Þorsteinsdóttur, eftir upplýsingum er varða byggingu Barnaskóla Kársness

Frá umhverfissviði, dags. 27.01.2026, lagt fram svar við fyrirspurn varðandi byggingu Barnaskóla Kársness. Erindi frá bæjarfulltrúum undir máli nr. 11 og 12 eru rædd og afgreidd undir þessum dagskrárlið.

Framhald umræðu vísað til næsta fundar bæjarráðs.
Lagt fram

Umræður.

Gestir viku af fundi kl. 10:13.

Indriði I. Stefánsson vék af fundi kl. 10:30.

Fundarhlé hófst kl. 10:16, fundi fram haldið kl. 11:15

Bókun:
"Meirihlutinn telur mikilvægt að allir bæjarráðsfulltrúar séu sammála um að gætt sé trúnaðar um sundurliðanir og bráðabirgðagreiningar á kostnaði við byggingu Barnaskóla Kársness þar til kröfugerð í gerðardómsmálinu hefur verið lögð fram, líkt og kom fram í ráðleggingum lögmanns Kópavogsbæjar í málinu. Kópavogsbær hefur í kjölfar þess að riftun verksamningsins var dæmd lögmæt lagt í stórfelldan kostnað við að gera við galla á verki ítalska verktakans auk þess sem verulegur kostnaður hefur fallið til við að reka verkið í mun lengri tíma en upphaflegur samningur gerði ráð fyrir. Kópavogsbær hyggst endurheimta allan viðbótarkostnað vegna málsins og þar skiptir máli að allar tölur séu vel staðreyndar og skilgreindar."

Ásdís Kristjánsdóttir
Orri V. Hlöðversson
Andri S. Hilmarsson
Elísabet B. Sveinsdóttir


Bókun:
"Undirrituð ítrekar enn og aftur beiðni um upplýsingar sem margsinnis hefur verið óskað eftir og fordæmir þá leyndarhyggju sem hefur átt sér stað allt frá því að samningum við aðalverktaka verksins var rift, bæði gagnvart íbúum og kjörnum fulltrúum. Undir þessu máli eru merkt trúnaðargögn en engin rök færð fyrir því hvers vegna það eigi að ríkja trúnaður um þau. Það eru meðal annars upplýsingar sem hafa áður komið fram, eru í opnu bókhaldi og jafnvel gögn sem augljóslega á ekki ríkja trúnaður um. Það eru hagsmunir íbúa Kópavogs að fá upplýsingar um hvernig farið er með opinbert fjármagn. Hægt er að gera það án þess birta nákvæmar upplýsingar um fyrirliggjandi kröfur í því dómsmáli sem framundan er."

Theódóra S. Þorsteinsdóttir


Bókun:
"Meirihlutinn hafnar öllum ásökunum um leyndarhyggju. Það er grundvallaratriði í eins viðamiklu gerðardómsmáli og hér um ræðir að hagsmunir Kópavogsbúa séu varðir af festu og heilindum. Fjárhagslegir hagsmunir Kópavogsbæjar af hagfelldri niðurstöðu varða verulega fjármuni.
Þess vegna telur meirihluti bæjarráðs það ekki málinu til framdráttar að gögn sem merkt eru trúnaði að ítrekuðum ráðleggingum lögmanns bæjarins hafi verið lekið í fjölmiðla.
Birting sundurliðaðra bráðabirgðatalna eða vinnuskjala á þessu stigi getur veikt stöðu bæjarins gagnvart gagnaðila og skaðað möguleika til fullrar endurheimtu kostnaðar. Þetta kemur skýrt fram í minnisblaði og máli lögmanns Kópavogsbæjar og byggir meirihlutinn afstöðu sína á þeim ráðleggingum. Þegar kröfugerð liggur fyrir verða allar upplýsingar aðgengilegar."

Ásdís Kristjánsdóttir
Orri Hlöðversson
Andri Steinn Hilmarsson
Elísabet Sveinsdóttir

Gestir

  • Jóhannes Karl Sveinsson, lögmaður - mæting: 08:45
  • Guðrún Edda Finnbogadóttir, skrifstofustjóri umhverfissviðs - mæting: 08:45
  • Ásthildur Helgadóttir sviðsstjóri umhverfisviðs - mæting: 08:45
  • Ármann Halldórasson deildarstjóri framkvæmdadeildar - mæting: 08:45

Erindi og umsagnir frá starfsmönnum

2.26012406 - Lántökur Kópavogsbæjar 2026

Frá deildarstjóra greiningardeildar, dags. 03.02.2026, lögð fram tillaga um að gefa út skuldabréf í skuldabréfaflokknum KOP24-1 að markaðsvirði allt að 3.000 milljónir. Jafnframt er óskað eftir heimild bæjarráðs og bæjarstjórnar til tímabundinnar hækkunar á lánalínum bæjarins hjá Arion banka ef með þarf, á meðan á sölu skuldabréfanna stendur.
Gestur vék af fundi kl. 11:55.

Dagskrártillaga:
"Undirritaðar óska eftir frestun til öflunar frekari upplýsinga í samræmi við neðangreinda bókun."

Theódóra S. Þorsteinsdóttir
Helga Jónsdóttir
Bergljót Kristinsdóttir

Bæjarráð hafnar með þremur atkvæðum gegn atkvæðum Theódóru S. Þorsteinsdóttur og Helgu Jónsdóttur tillögu um frestun málsins.

Bæjarráð samþykkir með þremur atkvæðu gegn atkvæðum Theódóru S. Þorsteinsdóttur og Helgu Jónsdóttur framlagða tillögu um útgáfu skuldabréfa í flokknum KOP24-1 og vísar henni til staðfestingar bæjarstjórnar.


Bókun:
"Skrifstofa áhættu- og fjárstýringar var sett á fót til að sinna betur greiningu á áhættu og fjárfestingum. Skrifstofan á að móta áhættustefnu og tryggja virka áhættustýringu í starfsemi og rekstri bæjarins. Einn mikilvægasti þátturinn í hlutverkinu er skiljanleg lánastýring. Fjármagnskostnaður, sem nú er í hæstu hæðum, er áhættuþáttur, sem bæjarráð getur haft mikil áhrif á. Tillögur verða að byggjast á skýrri greiningu á kostnaði við mismunandi valkosti sem til greina koma við fjármögnun á verkefnum bæjarins. Þess er því óskað að fyrir bæjarráð verði lagt mun skýrara mat á mismunandi leiðum til fjármögnunar fjárfestinga og rekstrar Kópavogsbæjar ásamt yfirliti yfir lántökur síðustu fimm ára. Núllkosturinn til samanburðar er að nýta tekjur Kópavogsbæjar til niðurgreiðslu lána. Þá fyrst þegar slíkar upplýsingar hafa verið lagðar fyrir getur bæjarráð tekið afstöðu til þess hvernig og hvaða verkefni á að fjármagna með lánsfé.

Helga Jónsdóttir
Theódóra S. Þorsteinsdóttir
Bergljót Kristinsdóttir


Fundarhlé hófst kl. 11:15, fundi fram haldið kl. 11:42


Bókun:
"Fyrirliggjandi tillaga er í fullu samræmi við samþykkta fjárhagsáætlun Kópavogsbæjar og lántökuheimildir ársins 2026, þar sem þegar hefur verið gert ráð fyrir bæði lántökum og afborgunum langtímalána. Hér er því ekki verið að taka nýja stefnumótandi ákvörðun um aukna skuldsetningu heldur verið að útfæra fjármögnun sem þegar hefur verið samþykkt. Meirihlutinn fellst á tillögu deildarstjóra greiningardeildar og telur ekki ástæðu til að fresta málinu."

Ásdís Kristjánsdóttir
Orri Hlöðversson
Andri Steinn Hilmarsson
Elísabet Sveinsdóttir

Gestir

  • Ingólfur Arnarson deildarstjóri greiningardeildar. - mæting: 11:44

Erindi og umsagnir frá starfsmönnum

3.2511279 - Umsókn um stofnframlag vegna byggingar á 24 íbúðum að Hallarhvarfi

Frá deildarstjóra greiningardeildar, dags. 03.02.2026, lögð fram umsögn varðandi umsókn um stofnframlag vegna byggingar á 24 íbúðum að Hallarhvarfi 17-19 og Hallarhvarfi 21--23.
Frestað til næsta fundar.

Erindi og umsagnir frá starfsmönnum

4.23031542 - Neyðarstjórn Kópavogsbæjar - Erindisbréf

Frá bæjarstjóra, dags. 03.02.2026, lagt fram uppfært erindisbréf neyðarstjórnar Kópavogs.
Bæjarráð vísar málinu til staðfestingar bæjarstjórnar.

Erindi og umsagnir frá starfsmönnum

5.26011922 - Samgönguáætlun fyrir árin 2026-2040

Frá umhverfissviði, dags. 03.02.2026, lögð fram umsögn Kópavogsbæjar vegna 322. máls, þingsályktunartillögu um samgönguáætlun fyrir árin 2026-2040.
Lagt fram.

Erindi og umsagnir frá starfsmönnum

6.2602352 - Tillaga bæjarstjóra - Okkar símalausi skóli

Frá bæjarstjóra, lögð fram tillagan "Okkar símalausi skóli". Lagt er til við bæjarráð að allir grunnskólar í Kópavogi fái kr. 250.000,- til kaupa á afþreyingu að eigin vali. Jafnframt er lagt til að farið verði í kosninguna „Okkar símalausi skóli“ þar sem og ungmenni fá tækifæri til að koma sínum hugmyndum á framfæri og kjósa lýðræðislega um í hvað fjármagnið fari.
Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum framlagða tillögu bæjarstjóra.

Ýmis erindi

7.26012422 - Breiðablik Skákdeild - Ósk um styrk vegna Alþjóðlega Kópavogsmótsins 2026, Ungir meistarar

Frá Skákdeild Breiðabliks, lögð fram beiðni um styrk vegna Alþjóðlega Kópavogsmótsins 2026.
Bæjarráð samþykkir að vísa málinu til afgreiðslu bæjarritara.

Ýmis erindi

8.26012935 - Til umsagnar 305. mál - Framkvæmd öryggisráðstafana samkvæmt dómsúrlausn

Frá velferðarnefnd Alþingis, lagt fram til umsagnar 305. mál - Framkvæmd öryggisráðstafana samkvæmt dómsúrlausn.
Lagt fram.

Ýmis erindi

9.26012641 - Til umsagnar 307. mál - Breyting á þingsályktun um áætlun og vernd og orkunýtingu landssvæða

Frá umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis, lagt fram til umsagnar 307. mál - Breyting á þingsályktun nr. 24/152 um áætlun og vernd og orkunýtingu landssvæða.
Lagt fram.

Ýmis erindi

10.26012937 - Til umsagnar 311. mál - Réttindavernd fatlaðs fólks

Frá velferðarnefnd Alþingis, lagt fram til umsagnar 311. mál- Réttindavernd fatlaðs fólks.
Lagt fram.

Ýmis erindi

11.26012938 - Til umsagnar 312. mál - Atvinnuleysistryggingar og vinnumarkaðsaðgerðir (stytting bótatímabils o.fl.)

Frá velferðarnefnd Alþingis, lagt fram til umsagnar 312. mál - Atvinnuleysistryggingar og vinnumarkaðsaðgerðir (stytting bótatímabils o.fl.).
Lagt fram.

Fundargerðir nefnda

12.26012636 - Fundargerð 277. fundar stjórnar Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins frá 09.01.2026

Fundargerð 277. fundar stjórnar Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins frá 09.01.2026.
Lagt fram.

Fundargerðir nefnda

13.2601035F - Menntaráð - 156. fundur frá 03.02.2026

Fundurgerð í fjórum liðum.
Lagt fram.

Fundargerðir nefnda

14.2601021F - Lýðheilsu- og íþróttanefnd - 9. fundur frá 29.01.2026

Fundargerð í 35 liðum.
Lagt fram.

Fundargerðir nefnda

15.2601032F - Skipulags- og umhverfisráð - 23. fundur frá 02.02.2026

Fundargerð í átta liðum.
Lagt fram.
  • 15.4 2512205 Hæðarhvarf 2. Breytt deiliskipulag.
    Lögð fram umsókn lóðarhafa lóðarinnar nr. 2 við Hæðarhvarf dags. 1. desember 2025 um breytingu á deiliskipulagi. Í breytingunni felst aukning byggingarmagns 32,1 m2 vegna útbygginga yfir svölum, B-rými. Nýtingarhlutfall hækkar úr 0,44 í 0,49. Uppdrættir dags. 29. nóvember 2025 og skráningartafla ódags. Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa þann 8. desember 2025 var erindinu vísað til umsagnar verkefnastjóra. Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa þann 22. desember 2025 var erindinu vísað til skipulags- og umhverfisráðs.
    Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 22. janúar 2026.
    Kristjana H. Kristjánsdóttir gerði grein fyrir erindinu.
    Niðurstaða Skipulags- og umhverfisráð - 23 Synjað með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 22. janúar 2026 með fimm atkvæðum Andra Steins Hilmarssonar, Þorðvarðar Hrafns Ásgeirssonar, Leós Snæs Péturssonar Helgu Jónsdóttur og Hákonar Gunnarssonar gegn atkvæði Gunnars Sæs Ragnarssonar. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar. Kristinn Dagur Gissurarson sat hjá við afgreiðslu málsins. Niðurstaða Bæjarráð vísar málinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.
  • 15.5 2402739 Nónhæð. Nónsmári 1-17. Breytt deiliskipulag.
    Lögð fram að nýju til afgreiðslu tillaga Hrólfs Carls Cela arkitekts dags. 12. febrúar 2024 f.h. lóðarhafa lóðanna nr. 1-17 við Nónsmára að breytingu á deiliskipulagi. Í breytingunni felst tilfærsla íbúða milli lóða og hækkun byggingarreita úr tveimur hæðum í þrjár á norðurhluta lóðanna. Heildarfjöldi íbúða á lóðunum tveimur helst óbreyttur, 100 íbúðir. Á lóðinni nr. 11-17 er íbúðum fjölgað úr 45 í 47 íbúðir. Hámarksflatarmál ofanjarðar er aukið um 490 m², úr 4.840 m² í 5.330 m², við það hækkar nýtingarhlutfall lóðarinnar úr 0,92 í 1,01. Á lóðinni nr. 1-9 er íbúðum fækkað úr 55 í 53 íbúðir og stigahúsum fjölgar um eitt, úr fjórum í fimm. Nyrsti hluti byggingarreits hækkar úr tveimur í þrjár hæðir. Hámarksflatarmál ofanjarðar er aukið um 1.240 m², úr 5.960 m² í 7.200 m², við það hækkar nýtingarhlutfall úr 0,94 í 1,10. Lóðin stækkar um 185 m², úr 6.360 m² í 6.545 m² til austurs að göngu- og hjólastíg meðfram Smárahvammsvegi. Tillagan var auglýst frá 23. október til 15. janúar 2026, athugasemdir bárust. Á fundi skipulags- og umhverfisráðs þann 19. janúar 2026 var erindinu vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa. Lagt fram að nýju ásamt uppfærðum uppdrætti dags. 30. janúar 2026 og umsögn skipulagsfulltrúa ásamt fylgiskjölum dags. 30. janúar 2026. Einnig eru lögð fram andmæli lóðarhafa við framkomnum athugasemdum dags. 26. janúar 2026 og 28. janúar 2026. Niðurstaða Skipulags- og umhverfisráð - 23 Samþykkt með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 30. janúar 2026 með fimm atkvæðum Kristins Dags Gissurarsonar, Andra Steins Hilmarssonar, Þorðvarðar Hrafns Ásgeirssonar, Gunnars Sæs Ragnarssonar og Hákonar Gunnarssonar gegn atkvæðum Helgu Jónsdóttur og Leó Snæs Péturssonar. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.

    Fundarhlé hófst kl. 17:08, fundi framhaldið kl. 17:32.

    Bókun:
    „Undirrituð leggjast gegn breytingu á deiliskipulagi Nónhæðar. Þegar deiliskipulag liggur fyrir eftir vandaðan undirbúning og víðtækt samráð geta einstakir lóðarhafar ekki vænst breytinga til hagsbóta fyrir sig nema veigamiklar nýjar ástæður komi fram sem réttlæta þá breytingu. Nýjar upplýsingar sem réttlæta breytingu á deiliskipulaginu hafa ekki komið fram. Það er varhugavert fordæmi og rýrir trúverðugleika stjórnvalda ef þau gefa þau skilaboð að breyting á samþykktu deiliskipulag sé samningsatriði eftir á. Þetta mál hefur tafist vegna ítrekaðra breytingabeiðna og dráttur á verklokum er óhæfilegur og óásættanlegur fyrir íbúa í nágrenninu.“
    Helga Jónsdóttir, Indriði Ingi Stefánsson og Leó Snær Pétursson.

    Bókun:
    „Eins og kemur fram í umsögn skipulagsfulltrúa hafa þær breytingar sem felast í tillögu að breyttu deiliskipulagi Nónsmára 1-9 og 11-17 óveruleg áhrif á nærliggjandi byggð og munu ekki raska hagsmunum nágranna að teljandi marki.“
    Kristinn Dagur Gissurarson, Andri Steinn Hilmarsson, Gunnar Sær Ragnarsson og Þorvarður Hrafn Ásgeirsson.
    Niðurstaða Bæjarráð vísar málinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.

Fundargerðir nefnda

16.2602001F - Ungmennaráð - 56. fundur frá 26.01.2026

Fundargerð í þremur liðum.
Lagt fram.

Fundargerðir nefnda

17.26013152 - Fundargerð 420. fundar stjórnar Strætó frá 23.01.2026

Fundargerð 420. fundar stjórnar Strætó frá 23.01.2026.
Lagt fram.

Fundargerðir nefnda

18.26013179 - Fundargerð 992. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitafélaga frá 23.02.2026

Fundargerð 992. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitafélaga frá 23.02.2026.
Lagt fram.

Erindi frá bæjarfulltrúum

19.2602345 - Tillaga bæjarfulltrúa minnihluta varðandi innri endurskoðun og úttekt á undirbúningi og framkvæmdum við Barnaskóla Kársness

Frá bæjarfulltrúum minnihluta, lögð fram tillaga varðandi innri endurskoðun og úttekt á undirbúningi og framkvæmdum við Barnaskóla Kársness.
Frestað til næsta fundar.

Erindi frá bæjarfulltrúum

20.2602348 - Ósk bæjarfulltrúa minnihluta um greinargerð um úthlutun lóðarinnar á Nýbýlavegi 1 til Olíuverslunar Íslands og um ráðstöfun lóðarleiguréttinda

Frá bæjarfulltrúum minnihluta, lögð fram beiðni um greinargerð um úthlutun lóðarinnar á Nýbýlavegi 1 til Olíuverslunar Íslands og um ráðstöfun lóðarleiguréttinda.
Bæjarráð vísar erindinu til umsagnar bæjarritara.

Erindi frá bæjarfulltrúum

21.2602349 - Ósk bæjarfulltrúa Theódóru S. Þorsteinsdóttur um upplýsingar um veikindahlutfall hjá Kópavogsbæ

Frá bæjarfulltrúa Viðreisnar, lögð fram beiðni um upplýsingar um veikindahlutfall hjá Kópavogsbæ.
Bæjarráð vísar erindinu til umsagnar mannauðsstjóra.

Erindi frá bæjarfulltrúum

22.2602350 - Ósk bæjarfulltrúa Theódóru S. Þorsteinsdóttur um upplýsingar um hvaða reglur gilda um auglýsingar starfa hjá yfirstjórn Kópavogsbæjar

Frá bæjarfulltrúa Viðreisnar, lögð fram beiðni um að fá upplýsingar um hvaða reglur gilda um auglýsingar starfa hjá yfirstjórn Kópavogsbæjar.
Bæjarráð vísar erindinu til umsagnar mannauðsstjóra.

Fundi slitið - kl. 12:41.