Bæjarráð

3246. fundur 12. febrúar 2026 kl. 08:15 - 11:44 í bæjarstjórnarsal, Hábraut 2
Fundinn sátu:
  • Orri Vignir Hlöðversson formaður
  • Hjördís Ýr Johnson, aðalmaður boðaði forföll og Elísabet Berglind Sveinsdóttir varamaður, sat fundinn í hans stað.
  • Andri Steinn Hilmarsson aðalmaður
  • Theódóra S Þorsteinsdóttir, aðalmaður boðaði forföll og Einar Örn Þorvarðarson varamaður, sat fundinn í hans stað.
  • Helga Jónsdóttir aðalmaður
  • Bergljót Kristinsdóttir áheyrnarfulltrúi
  • Sigurbjörg Erla Egilsdóttir áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Ásdís Kristjánsdóttir bæjarstjóri
  • Pálmi Þór Másson bæjarritari
Fundargerð ritaði: Pálmi Þór Másson bæjarritari
Dagskrá

Erindi og umsagnir frá starfsmönnum

1.26012238 - Þjónustukönnun sveitarfélaga 2025 - Gallup

Lögð fram þjónustukönnun sveitarfélaga fyrir árið 2025 sem unnin var af Gallup.
Lagt fram og kynnt.

Umræður.

Gestur vék af fundi kl. 9.25

Gestir

  • Jakob Sindri Þórsson sérfræðingur - mæting: 08:15

Erindi og umsagnir frá starfsmönnum

2.2511279 - Umsókn um stofnframlag vegna byggingar á 24 íbúðum að Hallarhvarfi

Frá deildarstjóra greiningardeildar, dags. 03.02.2026, lögð fram umsögn varðandi umsókn um stofnframlag vegna byggingar á 24 íbúðum að Hallarhvarfi 17-19 og Hallarhvarfi 21--23. Bæjarráð frestaði málinu 05.02.2026.

Lagt fram

Umræður.

Bæjarráð hafnar umsókn um stofnframlag með þremur atkvæðum gegn atkvæðum Helgu Jónsdóttur og Einars A. Þorvarðarsonar.

Fundarhlé hófst kl. 10:15, fundi fram haldið kl. 11:31

Bókun:
"Við úthlutun í Vatnsendahvarfi hefur bærinn haft til viðmiðunar um að auka framboð húsnæðis af öllum gerðum fyrir kaupendur á almennum húsnæðismarkaði. Það samræmist ekki þeim áherslum að verða við beiðni frá Bjargi íbúðafélagi um fjárhagsstuðning til uppbyggingarinnar að fjárhæð um 220 milljónir kr."

Ásdís Kristjánsdóttir
Orri Hlöðversson
Andri Steinn Hilmarsson
Elísabet Sveinsdóttir


Bókun:
"Það svar sem barst sem umsögn við þessu máli snýst einungis um félagslegt húsnæði Kópavogs og hvernig bærinn stendur að þeim málaflokki. Beiðni Bjargs íbúðafélags snýst hins vegar um 12% stofnframlag sveitarfélagsins á móti 18% framlagi ríkisins í samræmi við lög um almennar íbúðir. Þær íbúðir eru ætlaðar þeim tekjuhópum sem standa fjárhagslega skör ofar þeim sem eiga rétt til félagslegs húsnæðis en þurfa eigi að síður aðstoð til þess.

Bjarg hses hefur sýnt fram á að innan almenna íbúðakerfisins er hægt að bjóða tryggt húsnæði á mun betra verði en almennt er á leigumarkaði. Sjálfseignarstofnunin er í eigu ASÍ og BSRB en um 75% vinnandi fólks á aldrinum 16-64 ára er í aðildarfélögum heildarsamtakanna. Hlutfallið sem fullnægir eigna- og tekjuskilyrðum almenna íbúðakerfis er þó enn hærra, því að utan heildarsamtakanna eru betur launaðar stéttir, t.d. háskólafélög, stjórnendur og sérfræðingar. Undirrituð leggja áherslu á að Kópavogsbær taki upp samstarf við Bjarg til að opna möguleika fyrir námsmenn, ungt fólk, aldraða, fatlað fólk og fólk sem ekki er fært um að sjá sér fyrir húsnæði sökum félagslegra aðstæðna eða verulegs fjárhagsvanda. Kópavogur á að vera samfélag allra, ekki bara þeirra sem hafa efni á húsnæði með hárri arðkröfu fjárfesta og milljarðatekjum sveitarfélags af sölu byggingarréttar."

Bergljót Kristinsdóttir
Einar Þorvarðarson
Helga Jónsdóttir
Sigurbjörg E. Egilsdóttir


Bókun:
"Kópavogur á í samstarfi um lausnir í húsnæðismálum fyrir ólíka hópa, þ.m.t. tekjulága, öryrkja og aldraða. Það breytir því ekki að úthlutun til Bjargs samræmist ekki þeim áherslum sem mótaðar voru við úthlutun í Vatnsendahvarfi."

Ásdís Kristjánsdóttir
Orri Hlöðversson
Andri Steinn Hilmarsson
Elísabet Sveinsdóttir


Bókun:
"Kópavogsbær hefur á undanförnum árum ráðstafað landréttindum bæjarins til þeirra sem greiða hæst verð fyrir byggingarréttinn. Bærinn hefur haft margra milljarða tekjur af því. Hann er í góðri stöðu til að leggja af mörkum til uppbyggingar húsnæðis í þágu mismunandi tekjuhópa sem samkvæmt lögum er sameiginlegt hlutverk ríkis og sveitarfélaga."

Bergljót Kristinsdóttir
Einar Þorvarðarson
Helga Jónsdóttir
Sigurbjörg E. Egilsdóttir


Bókun:
"Meiri- og minnihluta greinir á um leiðir að því markmiði að sem flestir geti eignast þak yfir höfuðið. Sala á byggingarrétti á markaðsverði er sanngjarnasta leiðin til að tryggja að allir sitji við sama borð. Almenningur nýtur andvirðisins í formi uppbyggingar innviða, þjónustu, lægri skatta og niðurgreiðslu skulda."

Ásdís Kristjánsdóttir
Orri Hlöðversson
Andri Steinn Hilmarsson
Elísabet Sveinsdóttir

Erindi og umsagnir frá starfsmönnum

3.26011618 - Fyrirspurn bæjarfulltrúa Helgu Jónsdóttur vegna birtrar vinnslutillögu um Kársnesstíg á sunnaverðu Kársnesi

Á fundi bæjarráðs þann 22. janúar sl. var lögð fram fyrirspurn bæjarfulltrúa Helgu Jónsdóttur vegna birtrar vinnslutillögu um Kársnesstíg á sunnaverðu Kársnesi. Nú lögð fram umsögn bæjarritara fyrir hönd bæjarstjóra.
Lagt fram.

Umræður.

Erindi og umsagnir frá starfsmönnum

4.26012637 - Fannborg 2. Kæra vegna verkstjórnar og óleyfisframkvæmdar vegna niðurrifs í miðbæ Kópavogs

Frá úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála, dags. 10.02.2026, lagður fram úrskurður vegna máls nr. UUA2601015, kæra á ákvörðun byggingarfulltrúa Kópavogsbæjar um að

aðhafast ekkert vegna niðurrifs Fannborgar 2.
Lagt fram.

Umræður

Ýmis erindi

5.2602902 - Bókun 622. fundar stjórnar SSH. Ofanflóðahættumat - Skíðasvæðin

Frá SSH, dags. 05.02.2026, lögð fram bókun um ofanflóðahættumat.
Ásdís Kristjánsdóttir vék af fundi kl. 11:40.

Lagt fram.

Ýmis erindi

6.2602527 - Bókun 622. fundar stjórnar SSH. Brúum bilið milli fæðingarorlofs og leikskóla

Frá SSH, dags. 04.02.2026, lögð fram bókun varðandi bilið milli fæðingarorlofs og leikskóla.
Lagt fram.

Fundargerðir nefnda

7.2601029F - Afgreiðslur byggingarfulltrúa - 436. fundur frá 30.01.2026

Fundargerð í tíu liðum.
Vísað til staðfestingar bæjarstjórnar.

Fundargerðir nefnda

8.2601033F - Menningar- og mannlífsnefnd - 11. fundur frá 04.02.2026

Fundargerð í 11 liðum. Bæjarstjórn er bent á lið nr. 1.
Lagt fram.

Fundargerðir nefnda

9.2602009F - Velferðar- og mannréttindaráð - 14. fundur frá 09.02.2026

Fundargerð í átta liðum.
Lagt fram.
  • 9.4 2401489 Reglur um fjárhagsaðstoð
    Lagðar fram til afgreiðslu breytingar á reglum Kópavogsbæjar um fjárhagsaðstoð. Niðurstaða Velferðar- og mannréttindaráð - 14 Velferðar- og mannréttindaráð samþykkir fyrir sitt leyti breytingar á reglum um fjárhagsaðstoð og vísar þeim áfram til afgreiðslu í bæjarráði og staðfestingar í bæjarstjórn. Niðurstaða Vísað til staðfestingar í bæjarstjórn.
  • 9.6 2602490 Bókun 622. fundar stjórnar SSH. Vegna bráða- og viðbragðsteymis barna og ungmenna
    Lagður fram til afgreiðslu samstarfssamnningur sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu vegna miðlægs bráða-og viðbragðsteymis vegna ofbeldis meðal barna ásamt drögum að verklagsreglum teymisins. Niðurstaða Velferðar- og mannréttindaráð - 14 Velferðar- og mannréttindaráð samþykkir fyrir sitt leyti framlagðan samstarfssamning ásamt verklagsreglum og vísar málinu til afgreiðslu í bæjarráði og staðfestingar í bæjarstjórn. Niðurstaða Bæjarráð vísar málinu til staðfestingar í bæjarstjórn.

Fundargerðir nefnda

10.2602851 - Fundargerð 622. fundar stjórnar SSH frá 02.02.2026

Fundargerð 622. fundar stjórnar SSH frá 02.02.2026.
Lagt fram.

Fundargerðir nefnda

11.2602542 - Fundargerð 41. fundar Heilbrigðisnefndar Hafnarfjarðar- og Kópavogssvæðis frá 03.02.2026

Fundargerð 41. fundar Heilbrigðisnefndar Hafnarfjarðar- og Kópavogssvæðis frá 03.02.2026.
Lagt fram.

Fundargerðir nefnda

12.2602540 - Fundargerð 40. fundar Heilbrigðisnefndar Hafnarfjarðar- og Kópavogssvæðis frá 29.12.2025

Fundargerð 40. fundar Heilbrigðisnefndar Hafnarfjarðar- og Kópavogssvæðis frá 29.12.2025.
Lagt fram.

Erindi frá bæjarfulltrúum

13.26021378 - Fyrirspurn bæjarfulltrúa Helgu Jónsdóttur um stöðu máls varðandi málshöfðun fyrir héraðsdómi

Frá bæjarfulltrúa Vina Kópavogs, dags. 06.02.2026, lögð fram fyrirspurn um stöðu máls.
Bæjarráð samþykkir að vísa erindinu til bæjarritara.
Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að reglulegur fundur falli niður þann 19. febrúar vegna vetrarfría í Kópavogi.

Fundi slitið - kl. 11:44.