Bæjarráð

3250. fundur 19. mars 2026 kl. 08:15 - 09:53 í bæjarstjórnarsal, Hábraut 2
Fundinn sátu:
  • Orri Vignir Hlöðversson formaður
  • Hjördís Ýr Johnson varaformaður
  • Andri Steinn Hilmarsson aðalmaður
  • Theódóra S Þorsteinsdóttir, aðalmaður boðaði forföll og Einar Örn Þorvarðarson varamaður, sat fundinn í hans stað.
  • Helga Jónsdóttir aðalmaður
  • Bergljót Kristinsdóttir, aðalmaður boðaði forföll og Hákon Gunnarsson vara áheyrnarfulltrúi, sat fundinn í hans stað.
  • Sigurbjörg Erla Egilsdóttir, aðalmaður boðaði forföll og Indriði Ingi Stefánsson vara áheyrnarfulltrúi, sat fundinn í hans stað.
Starfsmenn
  • Ásdís Kristjánsdóttir bæjarstjóri
  • Pálmi Þór Másson bæjarritari
Fundargerð ritaði: Pálmi Þór Másson bæjarritari
Dagskrá

Erindi og umsagnir frá starfsmönnum

1.2602909 - Loftslagsstefna innri reksturs Kópavogsbæjar

Frá umhverfissviði, lögð fram drög að loftlagsstefnu innri rekstrar Kópavogsbæjar. Lagt er til við bæjarráð að samþykkja sviðsmynd B. Jafnframt er lagt til að setja fram aðgerðaráætlun til tveggja ára í senn.

Kynning og umræður.



Gestur vék af fundi kl. 8.57.



Bæjarráð frestaði málinu á fundi sínum 12.03.2026.
Bæjarráð samþykkir fyrir sitt leyti með þremur atkvæðum og hjásetu Einars A. Þorvarðarsonar og Helgu Jónsdóttur framlögð drög og aðgerðaráætlun til tveggja ára og vísar til staðfestingar bæjarstjórnar.

Erindi og umsagnir frá starfsmönnum

2.26031910 - Vinnuskóli 2026

Frá umhverfissviði, dags. 13.03.2026, lögð fram starfsáætlun Vinnuskóla Kópavogs 2026.
Lagt fram.

Erindi og umsagnir frá starfsmönnum

3.26021378 - Fyrirspurn bæjarfulltrúa Helgu Jónsdóttur um stöðu máls varðandi málshöfðun fyrir héraðsdómi

Frá bæjarritara, lagt fram svar við fyrirspurn bæjarfulltrúa Helgu Jónsdóttur um málshöfðun vegna lóðaúthlutana að Roðahvarfi.
Lagt fram.

Erindi og umsagnir frá starfsmönnum

4.26031233 - Umsókn um stofnframlög vegna íbúðakaupa í Kópavogi 2026

Frá Brynju leigufélagi ses. dags. 06.03.2026, lögð fram umsókn um stofnframlag Kópavogsbæjar 2026.
Umræður.

Bæjarráð samþykkir með þremur atkvæðum og hjásetu Einars A. Þorvarðarsonar og Helgu Jónsdóttur umsókn um stofnframlag í samræmi við erindi bréfritara.

Bókun:
"Undirrituð óska eftir rökstuðningi fyrir mismun á afgreiðslu þessa erindi og erindis Bjargs íbúðafélags ses. frá 3246. fundi bæjarráðs."

Helga Jónsdóttir
Einar Ö. Þorvarðarson
Hákon Gunnarsson
Indriði I. Stefánsson

Fundargerðir nefnda

5.2603012F - Innkaupanefnd - 15. fundur frá 16.03.2026

Fundargerð í sex liðum.
Lagt fram.

Fundargerðir nefnda

6.2603015F - Skipulags- og umhverfisráð - 26. fundur frá 16.03.2026

Fundargerð í níu liðum.
Lagt fram.

Fundargerðir nefnda

7.2603004F - Menntaráð - 159. fundur frá 17.03.2026

Fundargerð í fimm liðuum.
Lagt fram.
  • 7.3 26022644 Undirbúningur reksturs leik- og grunnskóla í Vatnsendahvarfi
    Minnisblað varðandi undirbúning reksturs samrekins leik- og grunnskóla í Vatnsendahvarfi lagt fram.

    Viljayfirlýsing lögð fram til samþykktar.
    Niðurstaða Menntaráð - 159 Pálmi Þór Másson, Steinn Sigríðar Finnbogason og Sindri Sveinsson víkja af fundi kl. 18:45.

    Umræður

    Fundarhlé hófst kl. 18:45, fundi fram haldið kl. 19:10.

    Dagskrártillaga:
    “Lagt er til að málinu verði frestað til næsta fundar menntaráðs."

    Björn Þór Rögnvaldsson
    Hreiðar Oddsson
    Sigurbjörg Erla Egilsdóttir.

    Dagskrártillögu um frestun hafnað með fjórum atkvæðum gegn atkvæðum Björns Þór Rögnvaldssonar, Hreiðars Oddssonar og Sigurbjargar Erlu Egilsdóttur.

    Bókun:
    "Undirrituð telja ekki tímabært að undirrita viljayfirlýsingu um rekstur nýs skóla í Vatnsendahvarfi á þessu stigi máls. Ekki liggja fyrir nauðsynlegar valkostagreiningar og ekki hefur verið gerð fullnægjandi grein fyrir samningsmarkmiðum sveitarfélagsins. Því liggja ekki fyrir þær upplýsingar sem þarf til að meta hvort að það að fara í umræddar viðræður sé gert á málefnalegum og faglegu grunni.

    Jafnframt er það verulegt áhyggjuefni að sveitarfélagið skuli ganga til viðræðna við einn tiltekinn aðila án þess að öðrum hafi verið gefinn kostur á að koma að borðinu. Með því er ekki aðeins komið í veg fyrir að hægt sé að bera saman ólíkar leiðir áður en afstaða er tekin, heldur vakna einnig spurningar um hvort jafnræðis sé gætt með fullnægjandi hætti við undirbúning málsins. Undirrituð telja því að áður en til undirritunar viljayfirlýsingar kemur þurfi að liggja fyrir opnari og vandaðri undirbúningur málsins.

    Björn Þór Rögnvaldsson
    Hreiðar Oddsson
    María Ellen Steingrímsdóttir
    Sigurbjörg Erla Egilsdóttir


    Bókun:
    “Meirihlutinn fagnar því að Kópavogsbær hyggst ganga til samninga við Skóla Ísaks Jónssonar um rekstur nýs samrekins leik- og grunnskóla í Vatnsendahvarfi. Meirihlutinn telur að tilkoma Ísaksskóla samræmist vel menntastefnu Kópavogsbæjar og verði mikilvæg viðbót við það öfluga skólasamfélag sem þegar er til staðar í Kópavogi.
    Skóli Ísaks Jónssonar býr yfir áratugalangri reynslu af menntun yngstu barna og hefur sinnt markvissri kennslu fimm ára barna og nemenda á yngsta stigi grunnskóla frá stofnun hans árið 1926. Meirihlutinn er stoltur af því að skóli með slíka reynslu og þekkingu hafi sýnt áhuga á að útvíkka starfsemi sína og taka þátt í uppbyggingu skólastarfs í Kópavogi.

    Hanna Carla Jóhannsdóttir
    Hildur Karen Sveinbjarnardóttir
    Jónas H. T. Einarsson
    Hjördís Einarsdóttir


    Menntaráð samþykkir fyrir sitt leyti viljayfirlýsingu milli Kópavogsbæjar og Skóla Ísaks Jónssonar ses. með fjórum atkvæðum og hjásetu Björns Þórs Rögnvaldssonar, Hreiðars Oddssonar og Sigurbjargar Erlu Egilsdóttur og vísar málinu til bæjarráðs og bæjarstjórnar til afgreiðslu.
    Niðurstaða Umræður

    Fundarhlé hófst kl. 8:55, fundi fram haldið kl. 9:52

    Bæjarráð samþykkir með þremur atkvæðum og hjásetu Einars A. Þorvarðarsonar og Helgu Jónsdóttur framlögð drög að viljayfirlýsingu á milli Kópavogsbæjar og Skóla Ísaks Jónssonar ses. og vísar þeim til staðfestingar bæjarstjórnar.

    Bókun:
    Efni fyrirliggjandi viljayfirlýsingar felur í sér ráðstöfun mjög mikilla verðmæta af hálfu Kópavogsbæjar. Við ráðstöfun takmarkaðra gæða er Kópavogsbæ skylt að gæta ákvæða stjórnsýslulaga m.a. um jafnræði, lögmæti og gagnsæi áður en gengið er til samningaviðræðna við einn ákveðinn aðila. Bæjastjóri gekk til slíkra viðræðna án nokkurrar vitneskju eða heimildar bæjarráðs.

    Einar Örn Þorvarðarson
    Hákon Gunnarsson
    Helga Jónsdóttir
    Indriði Ingi Stefánsson

    Hákon Gunnarsson vék af fundi kl. 9:10.


    Bókun:
    "Meirihluti bæjarráðs fagnar vilja beggja aðila til samstarfs vegna fyrirhugaðs reksturs samrekins leik- og grunnskóla í Vatnsendahvarfi. Þetta er jákvætt og mikilvægt skref í uppbyggingu skólaþjónustu og stuðlar að fjölbreyttum lausnum og auknu framboði í menntamálum.
    Viljayfirlýsing þessi er ekki lögformlega bindandi samningur um rekstur eða fjárskuldbindingar milli aðila, heldur lýsing á ásetningi þeirra til að hefja formlegar viðræður og samstarf um ofangreint verkefni af heilindum."

    Ásdís Kristjánsdóttir
    Orri V. Hlöðversson
    Hjördís Ýr Johnson
    Andri S. Hilmarsson


    Bókun:
    "Viljayfirlýsingin útilokar að aðrir komi að verkefninu. Afstaða okkar ræðst ekki af viðhorfi til viðsemjandans heldur viljum við að sveitarfélagið Kópavogur standi vörð um meginreglur stjórnsýslulaga."

    Einar Örn Þorvarðarson
    Helga Jónsdóttir
    Indriði Ingi Stefánsson


    Bókun:
    "Samkvæmt lögum er sveitarfélögum heimilt að fela sjálfstæðum aðila rekstur skóla á grundvelli þjónustusamnings og velja sér samstarfsaðila við slíkt verkefni. Að sjálfsögðu verður gætt að því í ferlinu sem framundan er að góðum stjórnsýsluháttum verði áfram fylgt."

    Ásdís Kristjánsdóttir
    Orri V. Hlöðversson
    Hjördís Ýr Johnson
    Andri S. Hilmarsson


    Bókun:
    "Við drögum ekki í efa heimild Kópavogsbæjar til að fela sjálfstæðum aðila rekstur skóla á grundvelli þjónustusamnings. Sú heimild er þó bundin því að í upphafi sé kannað hvort fleiri aðilar en einn geti komið til móts við skilgreindar þarfir bæjarins."

    Einar Örn Þorvarðarson
    Helga Jónsdóttir
    Indriði Ingi Stefánsson

Fundi slitið - kl. 09:53.