Bæjarráð

3254. fundur 30. apríl 2026 kl. 08:15 - 10:34 í bæjarstjórnarsal, Hábraut 2
Fundinn sátu:
  • Orri Vignir Hlöðversson, aðalmaður boðaði forföll og Björg Baldursdóttir varamaður, sat fundinn í hans stað.
  • Hjördís Ýr Johnson varaformaður
  • Andri Steinn Hilmarsson aðalmaður
  • Jóhanna Pálsdóttir varafulltrúi
  • Helga Jónsdóttir aðalmaður
  • Bergljót Kristinsdóttir áheyrnarfulltrúi
  • Sigurbjörg Erla Egilsdóttir áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Ásdís Kristjánsdóttir bæjarstjóri
  • Pálmi Þór Másson bæjarritari
  • Jóhanna Pálsdóttir
Fundargerð ritaði: Pálmi Þór Másson bæjarritari
Dagskrá

Erindi og umsagnir frá starfsmönnum

1.24071773 - Kópavogstún 14. Drög að viljayfirlýsingu.

Frá lögfræðiþjónustu, dags. 28.04.2026, lögð fram drög að viljayfirlýsingu vegna samstarfs Kópavogsbæjar og Lionsklúbbs Kópavogs vegna endurbóta á véla -og verkfærageymslu, í daglegu tali nefnd „Hlaðan“, á lóðinni nr. 14 við Kópavogstún.

Frestað til næsta fundar.

Erindi og umsagnir frá starfsmönnum

2.21111437 - Kópavogsgerði 8, Geðræktarhús - drög að leigusamningi

Frá bæjarstjóra, lögð fram drög að leigusamningi milli Kópavogsbæjar og Alzheimersamtakanna á Íslandi.
Umræður.

Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum framlögð drög að leigusamningi milli Kópavogsbæjar og Alzheimnersamtakanna á Íslandi.

Erindi og umsagnir frá starfsmönnum

3.25092909 - Minnisblað - þjónustumiðstöð Golfklúbbs Kópavogs og Garðabæjar (GKG)

Frá bæjarstjóra, lagt fram minnisblað varðandi uppbyggingu GKG á nýrri þjónustumiðstöð golfvalla GKG í Garðabæ.
Lagt fram.

Umræður.

Fundarhlé hófst kl. 9:43, fundi fram haldið kl. 10:33

Bókun:
"Á fundi bæjarráðs 2. október 2025 samþykkti bæjarráð með öllum atkvæðum að vísa erindi GKG til umsagnar bæjarstjóra. Umsögnin á að fela í sér upplýsingar um stöðu Kópavogsbæjar og svigrúm til að verða við erindinu um uppbyggingu þjónustumiðstöðvar fyrir golfklúbb Kópavogs og Garðabæjar. Því er áréttað að bæjarstjóri leggi fyrir fund bæjarráðs fjárfestingaráætlun Kópavogsbæjar til sama árabils og samningur við GKG myndi taka.
Við svona ákvörðun verður að liggja fyrir hversu mikil útgjöld fylgja fjárfestingum sem Kópavogsbær hefur þegar ákveðið og hvernig þau skiptast á málaflokka m.a. með tilliti til þess hvaða verkefni eru lögbundin og óhjákvæmileg. Einnig þarf að áætla fyrir rekstrarkostnaði þeirra mannvirkja sem Kópavogsbær reisir til eigin nota. Þá þarf að áætla hvernig skatttekjur bæjarins á tímabilinu eiga að standa undir fjárfestingarákvörðunum."

Helga Jónsdóttir
Bergljót Kristinsdóttir
Sigurbjörg Erla Egilsdóttir
Jóhanna Pálsdóttir

Sigurbjörg E. Egilsdóttir vék af fundi kl. 9:49.


Bókun:
"Þessar upplýsingar munu að sjálfsögðu allar liggja fyrir áður en samningur verður lagður fyrir til samþykktar."

Hjördís Ýr Johnson
Ásdís Kristjánsdóttir
Björg Baldursdóttir
Andri Steinn Hilmarsson


Bókun:
"Nauðsynlegt er að fá greiningu á getu Kópavogsbæjar til fjárfestinga á næstu árum áður en lengra er haldið."

Helga Jónsdóttir
Bergljót Kristinsdóttir
Jóhanna Pálsdóttir


Bókun:
"Meirihlutanum þykir miður að sjá Samfylkinguna, Viðreisn og Vini Kópavogs spila pólitíska tafarleiki í þessu máli sem er aðkallandi fyrir golfklúbb GKG. Upplýsingar um áhrif á fjárfestingaráætlun verða lagðar fram þegar samningur um uppbygginguna og allar forsendur liggja fyrir til að bæjarráð geti tekið upplýsta ákvörðun."

Hjördís Ýr Johnson
Ásdís Kristjánsdóttir
Björg Baldursdóttir
Andri Steinn Hilmarsson


Bókun:
"Upplýsingar eftir að samningur hefur verið gerður duga ekki til. Það er ekki tafaleikur að fara fram á upplýsingar sem eru nauðsynleg forsenda ákvörðunar."

Helga Jónsdóttir
Bergljót Kristinsdóttir
Jóhanna Pálsdóttir


Bókun:
"Við vísum til fyrri bókana."

Hjördís Ýr Johnson
Ásdís Kristjánsdóttir
Björg Baldursdóttir
Andri Steinn Hilmarsson

Erindi og umsagnir frá starfsmönnum

4.26031182 - Sveitarstjórnarkosningar 2026

Frá lögfræðiþjónustu, lagður fram starfsmannalisti undirkjörstjórna, auk staðsetningar kjörstaða vegna sveitarstjórnarkosninga 2026.
Bæjarráð vísar erindinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.

Ýmis erindi

5.26042413 - Aðalfundur Landskerfis bókasafna 2026

Frá Landskerfi bókasafna, 17.04.2026, lagt fram fundarboð vegna aðalfundar er haldinn verður 12.05.2026.
Lagt fram.

Ýmis erindi

6.26043070 - Til umsagnar 595. mál - Loftslagslög

Frá umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis, dags. 24.04.2026, lagt fram til umsagnar 595. mál - Loftslagslög.
Lagt fram.

Fundargerðir nefnda

7.2604010F - Afgreiðslur byggingarfulltrúa - 441. fundur frá 10.04.2026

Fundargerð í níu liðum.
Vísað til staðfestingar bæjarstjórnar.

Fundargerðir nefnda

8.2604020F - Menntaráð - 161. fundur frá 21.04.2026

Fundargerð í fjórum liðum.
Lagt fram.

Fundargerðir nefnda

9.2604013F - Menningar- og mannlífsnefnd - 14. fundur frá 17.04.2026

Fundargerð í einum lið.
Lagt fram.

Fundargerðir nefnda

10.2603039F - Skipulags- og umhverfisráð - 27. fundur frá 20.04.2026

Fundargerð í 11 liðum.
Lagt fram.
  • 10.4 25111111 Kópavogsbraut 20. Byggingarleyfisumsókn.
    Lögð fram byggingarleyfisumsókn Gests Ólafssonar arkitekts f.h. lóðarhafa lóðarinnar nr. 20 við Kópavogsbraut. Sótt er um að byggja glerskála/gróðurhús við vesturhlið núverandi íbúðarhúss og tvær viðbyggingar við suður- og norðurhlið bifreiðageymslu, samtals 250 m² að flatarmáli. Nýtingarhlutfall lóðarinnar hækkar úr 0,19 í 0,34 við breytinguna. Uppdrættir dags. 15. apríl 2025, uppfærðir 25. september 2025. Byggingarleyfisumsóknin var grenndarkynnt frá 13. janúar til 26. febrúar 2026, athugasemdir bárust. Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa þann 25. mars 2026 var erindinu vísað til skipulags- og umhverfisráðs. Jafnframt lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 16. apríl 2026, uppfært 21. apríl 2026. Niðurstaða Skipulags- og umhverfisráð - 27 Ester Anna Ármannsdóttir gerði grein fyrir erindinu og vék af fundi að því loknu.

    Synjað með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 16. apríl 2026. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.
    Niðurstaða Bæjarráð vísar afgreiðslu málsins til bæjarstjórnar.

Fundargerðir nefnda

11.2604012F - Leikskólanefnd - 179. fundur frá 16.04.2026

Fundargerð í sjö liðum.
Lagt fram.

Mál nr. 7 á dagskrá nefndarinnar:
Bæjarráð vísar því til menntasviðs að gæta að samræmis með hagsæld barna að leiðarljósi.

Fundargerðir nefnda

12.26042473 - Fundargerð 145. fundar stjórnar Svæðisskipulagsnefndar frá 10.04.2026

Fundargerð 145. fundar stjórnar Svæðisskipulagsnefndar frá 10.04.2026.
Lagt fram.

Fundargerðir nefnda

13.26042915 - Fundargerð 626. fundar stjórnar SSH frá 20.04.2026

Fundargerð 626. fundar stjórnar SSH frá 20.04.2026.
Lagt fram.

Fundargerðir nefnda

14.26042909 - Fundargerð 436. fundar Samstarfsnefndar skíðasvæða höfuðborgarsvæðisins frá 22.04.2026

Fundargerð 436. fundar Samstarfsnefndar skíðasvæða höfuðborgarsvæðisins frá 22.04.2026.
Lagt fram.

Fundargerðir nefnda

15.26043125 - Fundargerð 997. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga frá 17.04.2026

Fundargerð 997. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga frá 17.04.2026.
Lagt fram.

Fundi slitið - kl. 10:34.