Breyttur opnunartími velferðarsviðs

Fannborg 6 hýsir skrifstofur velferðarsviðs Kópavogsbæjar.
Fannborg 6 hýsir skrifstofur velferðarsviðs Kópavogsbæjar.

Frá og með 22. maí verður skrifstofa velferðarsviðs, Fannborg 6, opin mánudaga til fimmtudaga frá klukkan 08:00 – 15:00 og á föstudögum frá klukkan 08:00 – 12:00.

Opnunartími þjónustuvers á Digranesvegi 1 er óbreyttur. Þar má áfram fá aðstoð, leita ráðgjafar, koma skilaboðum á starfsfólks velferðarsviðs og skila inn gögnum.

Ef fólk á erindi til fundar eða viðtals í Fannborg 6 utan opnunartíma skrifstofu velferðarsviðs sér viðkomandi starfsmaður velferðarsviðs um að taka á móti gestum.

Tilgangur með breyttum opnunartíma er að skapa svigrúm til að sinna verkefnum skrifstofu velferðarsviðs með enn skilvirkari hætti en nú er.