Dagar ljóðsins

Frá afhendingu Ljóðstafs Jóns úr Vör 2016. Karen E. Halldórsdóttir formaður lista- og menningarráðs…
Frá afhendingu Ljóðstafs Jóns úr Vör 2016. Karen E. Halldórsdóttir formaður lista- og menningarráðs, Dagur Hjartarson handhafi Ljóðstafs Jóns úr Vör 2016, Ármann Kr. Ólafsson bæjarstjóri Kópavogsbæjar og Anton Helgi Jónsson skáld og formaður dómnefndar.

100 ár verða liðin frá fæðingu Jóns úr Vör 21. janúar 2017 og hefst þá ljóðahátíðin Dagar ljóðsins í Kópavogi.

Ljóðstafur Jóns úr Vör

Ljóðstafur Jóns úr Vör verður afhentur við hátíðlega athöfn laugardaginn 21. janúar í Salnum. 263 ljóð bárust í keppnina um Ljóðstafinn að þessu sinni og hefur dómnefnd valið tíu ljóð úr safninu, þrjú sem fá verðlaun og sjö sem fá viðurkenningar. Sigurvegari keppninnar hlýtur Ljóðstaf Jóns úr Vör til varðveislu í eitt ár og 300.000 kr. peningaverðlaun. Fyrir ljóðið sem hafnar í öðru sæti eru veitt 200.000 kr. peningaverðlaun og 100.000 kr. fyrir þriðja sætið.

Samtímis verða kynnt úrslit í Ljóðasamkeppni grunnskólanna í Kópavogi.

Dagar ljóðsins

Dagar ljóðsins standa í rúma viku og fjölmargir viðburðir fyrir alla fjölskylduna verða á hátíðinni. Menningarhúsin í Kópavogi bjóða upp á tvær fjölskyldustundir laugardaginn 21. janúar, ljóðatónleikana Ég sá sauð í Salnum og ritsmiðjuna Búum til bók á Bókasafni Kópavogs. Þriðjudaginn 24. janúar kemur Jón Yngvi Jóhannsson á aðalsafn Bókasafns Kópavogs og heldur erindið Eftir flóðið þar sem hann gengur fjörur jólabókaflóðsins 2016. Fimmtudaginn 26. janúar verður grasrótarkvöld í Garðskálanum þar sem hægt verður að hlýða á ferska strauma í íslenskri ljóðagerð – og jafnvel stíga á stokk sjálfur.

Samhliða þessu verður sýning frá Mynda- og sögusafni Vestur-Barðarstrandasýslu um Jón úr Vör á bókasafninu og einnig verður þar sett upp ljóðalistaverk eftir Hörpu Dís Hákonardóttur.

Dögum ljóðsins lýkur 28. janúar þegar haldið verður málþingið Jón úr Vör – skáld þorps og þjóðar í Salnum, þar sem sýnd verður stutt heimildarmynd Marteins Sigurgeirssonar um skáldið og rithöfundar og fræðimenn minnast Jóns. Þorsteinn frá Hamri ávarpar gesti og haldin verða erindi um bæði manninn og skáldið Jón úr Vör.

Orðlistin verður áberandi um allt bæjarfélagið á meðan Dögum ljóðsins stendur. Leikskólabörnum verður boðið í ljóðasmiðjur á bókasafninu, grunnskólanemendur hafa setið baki brotnu við ljóðagerð fyrir ljóðasamkeppni grunnskóla Kópavogs og vinningsljóðunum verður dreift um bæinn á veggspjöldum og bókamerkjum. Það er von Lista- og menningarráðs Kópavogsbæjar að hátíðin og samkeppnin um Ljóðstaf Jóns úr Vör séu bæði lestrar- og skriftahvetjandi og kveiki áhuga á hinu ritaða orði hvarvetna í samfélaginu.

Jón úr Vör

Jón úr Vör fæddist á Vatneyri við Patreksfjörð 21. janúar 1917 en starfaði lengst af í Kópavogi þar sem hann var hvatamaður að stofnun bókasafnsins og síðar fyrsti bæjarbókavörður bæjarfélagsins. Jón starfaði að menningarmálum með ýmsum hætti, var til dæmis bæði bóksali og ritstjóri, en fyrst og fremst var hann brautryðjandi í íslenskri ljóðagerð. Fjölmargar ljóðabækur hans lifa með þjóðinni og ber þá helst að nefna óð hans til æskustöðvanna, ljóðabálkinn Þorpið. Jón úr Vör lést 4. mars árið 2000 og frá árinu 2002 hefur Lista- og menningarráð Kópavogsbæjar afhent Ljóðstaf Jóns úr Vör á fæðingardegi skáldsins.