Fékk fjarsjá í afmælisgjöf

Ármann Kr. bæjarstjóra og Finnur Ingimarsson, forstöðumaður Náttúrufræðistofu Kópavogs.
Ármann Kr. bæjarstjóra og Finnur Ingimarsson, forstöðumaður Náttúrufræðistofu Kópavogs.

Náttúrufræðistofa Kópavogs varð 30 ára um helgina en af því tilefni eru nú til sýnis munir úr fyrstu söfnum stofunnar, þ.e.a.s. skeljasafni, steinasafni og fuglasafni. Ókeypis er inn á safnið. Bæjarráð Kópavogs gaf safninu fjarsjá í afmælisgjöf með  þrífæti og augnlinsu. Verður hún m.a. notuð við fuglaskoðun og á sumarnámskeiðum fyrir börn og unglinga.

Hlutverk Náttúrufræðistofunnar er að safna, varðveita og sýna náttúrugripi, standa að fræðslu og rannsóknum í náttúrufræðum og stuðla að náttúru- og umhverfisvernd. Frá upphafi hefur Kópavogsbær staðið að rekstri stofunnar en hún hefur einnig aflað verulegra sértekna með útseldum verkefnum.

Elsta skjal í vörslu Náttúrufræðistofunnar er dagsett 27. september 1970 og er hvatning Árna Waag, kennara í Kópavogi, til bæjaryfirvalda um að setja á stofn náttúrugripasafn og kaupa skeljasafn Kópavogsbúans Jóns Bogasonar en hann hafði verið um skeið starfsmaður Hafrannsóknastofnunar. 

Í upphafi samanstóð safngripakosturinn af þessu skeljasafni Jóns Bogasonar og fuglasafni Hans Jörgensens sem var fyrsti skólastjóri Vesturbæjarskóla í Reykjavík, en Kópavogsbær keypti þessi söfn. Auk þess keypti bærinn hluta af steinasafni Halldórs Péturssonar og Svövu Jónsdóttur. Skeljasafnið var stærst þessara safna en auk söfnunargleðinnar var Jón Bogason afbragðs teiknari og gaf hann seinna Náttúrufræðistofunni eftirprent af mörgum teikninga sinna. Þær teikningar er nú einnig til sýnis í anddyrinu.

Fyrsti forstöðumaður safnsins var Árni Waag en seinna tók við Hilmar J. Malmquist. Hilmar varð forstöðumaður Náttúruminjasafns Íslands nú í haust og tók þá við af honum Finnur Ingimarsson.

Í hvatningarorðum sínum til bæjaryfirvalda sagði Árni Waag m.a.: „Allt fóll á sér áhugamál. Sumir helga tómstundir sínar listum, aðrir íþróttum og þannig mætti áfram telja. En hver svo sem áhugamálin eru þá eiga þau öll það sammerkt – hafa þann tilgang í eðli sínu – að veita manneskjunni einhverja fyllingu erða hamingju. Sum þessara áhugasviða eru e.t.v. nokkuð sérhæfð og höfða til fárra. Önnur hafa í eðli sínu skírskotun til stærri hóps. Til þeirra held ég að megi tvímælalaust telja náttúrufræði og náttúruskoðun. Skýringin blasi við – náttúra er hluti af tilveru okkar, við erum sjálf hluti af þessari náttúru.“

Meðfylgjandi mynd er af þeim Ármanni Kr. Ólafssyni bæjarstjóra og Finni Ingimarssyni, forstöðumanni Náttúrufræðistofu Kópavogs.