Opið hús vegna forkynningar á tillögu á vinnslustigi að breytingu á aðalskipulagi í Vatnsendahvarfi

Fimmtudaginn 8. desember 2022 milli 15:00-17:00 verður opið hús á bæjarskrifstofum Kópavogs að Digranesvegi 1 þar sem ofangreind tillaga á vinnslustigi að breytingu á aðalskipulagi fyrir Vatnsendahvarf verður kynnt þeim sem þess óska.

Vakin er athygli á að nú stendur yfir í samræmi við 2. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 forkynning á tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Kópavogs 2019-2040 fyrir Vatnsendahvarf. Tillögunni fylgir m.a. umhverfisskýrsla sem unnin er sameiginlega fyrir tillögu að breytingu á aðalskipulagi og tillögu að deiliskipulagi Vatnsendahvarfs.

Kynningargögn má nálgast á vefsíðu bæjarins og í þjónustuveri Kópavogsbæjar að Digranesvegi 1 frá kl. 8:30 til 16:00 mánudag til fimmtudaga og á föstudögum frá 8:30 til 13:00. ÍBÚAR-Skipulagsmál-Skipulag og framkvæmdaleyfi í kynningu

Þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta eru hvattir til að kynna sér tillöguna. Athugasemdir og ábendingar skulu hafa borist skriflega til skipulagsdeildar Umhverfissviðs, Digranesvegi 1, 200 Kópavogi eða á netfangið skipulag@kopavogur.is eigi síðar en kl. 16:00 miðvikudaginn 11. janúar 2023