27.02.2026
Árleg Söngkeppni Félkó fór fram í Salnum miðvikudaginn 25.febúar við afar góðar undirtektir og ríkti þar mikil stemning. Sigurvegari keppninnar var Freyja Bjarnadóttir úr félagsmiðstöðinni Þebu sem flutti lagið All I Ask með Adele. Í öðru sæti hafnaði Lovísa Gísladóttir úr félagsmiðstöðinni Ekkó með lagið There Are Worse Things I Could Do úr söngleiknum Grease.