Fyrirhugað að fræsa malbik á Hlíðarhjalla fimmtudaginn 22. september

Fyrirhugað er að fræsa malbik á Hlíðarhjalla á milli gatnamóta við Dalveg og gatnamóta við Fífuhjalla fimmtudaginn 22. september og mun framkvæmdin standa yfir frá kl. 9:00 til 15:00.

Vegfarendum með erindi til eða frá Hlíðarhjalla 63-73, Fagrahjalla, Furuhjalla og Fífuhjalla er bent á að aka um vesturhelming Hlíðarhjalla á meðan framkvæmdum stendur. Íbúar við Trönuhjalla, Skógarhjalla og Lækjarhjalla er bent á að aka frá heimilum sínum fyrir kl. 9:00, færa bíla sína utan framkvæmdasvæðis eða nýta almenningssamgöngur á meðan framkvæmdum stendur.

Fyrir aðra vegfarendur með erindi í Hlíðarhjalla er bent á hjáleiðir um Dalveg og Digranesveg.

Beðist er velvirðingar á þeim óþægindum sem framkvæmdin kann að valda og eru ökumenn beðnir um að sýna tillitsemi og virða merkingar. 

Hjáleið

 

Hjáleið