Lokanir vegna malbikunarframkvæmda

Miðvikudaginn 20. ágúst frá kl. 9:00 til 15:00 verða akreinar til austurs á Fífuhvammsvegi lokaðar vegna malbiksframkvæmda við gatnamót Dalvegar. Bent er á hjáleiðir um Skógarlind eða Smárahvammsveg á meðan framkvæmdum stendur.

Umferð gangandi og hjólandi helst óskert en sýna þarf aðgát þar sem farið er um í nágrenni við vinnuvélar. Beðist er velvirðingar á þeim óþægindum sem framkvæmdirnar kunna að valda og eru allir vegfarendur óháð fararmáta beðnir um að sýna tillitssemi, halda hraða í hófi og virða merkingar.

Akreinar til austurs á Fífuhvammsvegi lokaðar