Framúrskarandi grunnskóla- og frístundastarfi veittar viðurkenningar

Handhafar Kópsins 2026 ásamt Ásdísi Kristjánsdóttur bæjarstjóra og Önnu Birnu Snæbjörnsdóttur sviðs…
Handhafar Kópsins 2026 ásamt Ásdísi Kristjánsdóttur bæjarstjóra og Önnu Birnu Snæbjörnsdóttur sviðsstjóra menntasviðs, Ingibjörgu Ýr Pálmadóttur deildarstjóra grunnskóladeildar og Heklu Hannibalsdóttur verkefnastjóra.

Sjö hlutu Kópinn, viðurkenningu menntaráðs Kópavogs fyrir framúrskarandi grunnskóla- og frístundastarf í Kópavogi. 

Kópurinn var veittur við hátíðlega athöfn í Salnum miðvikudaginn 8. apríl. Alls bárust 35 tilnefningar um 34 verkefni til menntaráðs og voru veittar viðurkenningar fyrir sjö verkefni sem þóttu fela í sér umbætur eða leiða til framfara í skóla og frístundastarfi.

Nánar um verkefnin

Steinunn Gerður Kristjánsdóttir, Guðrún Dröfn Ragnarsdóttir Anna Þórunn Guðmundsdóttir og Kristín Jóna Kristjónsdóttir hlutu viðurkenningu fyrir námsúrræðið Smámál, Orðaflaumur og Orðaflúr í Smáraskóla. Verkefnið er heildstætt og vel uppbyggt námsefni á unglingastigi sem leggur áherslu á fjölbreyttan orðaforða, skapandi vinnu og virka þátttöku nemenda. Verkefnin eru fjölbreytt í eðli og framsetningu, unnin bæði einstaklings-, para- og hópum og bjóða nemendum raunverulegt val og sveigjanleika.

Sigríður Rut Marrow Arnþórsdóttir, Halldór Snorrason og Harpa Rós Guðmundsdóttir í Salaskóla hlutu viðurkenningu fyrir verkefnið Jólasjónvarp. Um er að ræða valgrein á haustönn þar sem nemendur framleiða jólaþátt sem sýndur er í beinu streymi fyrir allan skólann í síðuðstu viku fyrir jólaleyfi. Nemendur skrifa handrit, skipta með sér hlutverkum eins og leikstjórn, kynningarmálum og tæknivinnu og safna inn sketsum og atriðum frá öllum árgöngum skólans.

Hera Thai Ha Nguyen, stærðfræðikennari í Álfhólsskóla hlaut viðurkenningu fyrir verkefnið Markviss notkun ThatQuiz og OneNote í stærðfræðikennslu á unglingastigi og einhverfudeild. Verkefnið felst í samþættri notkun stafrænu verkfæranna ThatQuiz og OneNote í stærðfræðikennslu á unglingastigi fyrir fjölbreyttan nemendahóp. Með ThatQuiz er hægt að kanna forhugmyndir nemenda og fylgjast með námi þeirra í rauntíma, á meðan OneNote er notað til að setja fram skýrar, sjónrænar útskýringar og glósur sem nemendur hafa aðgang að hvenær sem er. Aðferðin styður við leiðsagnarmat, einstaklingsmiðað nám og virka þátttöku nemenda.

Magnús Alfonsson kennari og Halldór Hlöðversson forstöðumaður félagsmiðstöðvarinnar Kjarnans í Kópavogsskóla hlutu viðurkenningu fyrir verkefnið Góðmenning. Góðmenning er hugmyndafræði sem unnið er með í starfseminni og snýst um að öllum nemendum sé umhugað um hvernig náunganum líður. Áherslan er s.s. á umburðarlyndi og samkennd í anda "Good before smart - hugmyndafræðinnar". Með þessari nálgun læra nemendur (og þátttakendur í frístundastarfi) að taka sameiginlega ábyrgð á menningunni sem ríkir innan veggja skóla síns og félagsmiðstöðvar.

Kristrún Sveinbjörnsdóttir forstöðukona frístundar og Katrín M. Haig Konráðsdóttir aðstoðarforstöðukona frístundar Salaskóla hluti viðurkenningu fyrir verkefnið Snillismiðja og vísindasmiðja í frístund. Vísinda- og snillismiðjurnar í frístund Salaskóla eru mjög vinsælar og styrkja bæði vísindalæsi og miðlalæsi barna. Markmiðið er að efla forvitni, sköpun, gagnrýna hugsun og tæknivitund í gegnum leik og tilraunir. Saman mynda þessar smiðjur heildstætt námssamfélag þar sem börn fá að læra með því að gera, skapa og uppgötva.

Smáraskóli hlaut viðurkenningu fyrir verkefnið Laugavegsganga. Á hverju hausti gengur 8. bekkur Laugaveginn ásamt kennurum og öðrum fullorðnum. Ferðin er vandlega undirbúin og kynnt í 7. bekk. Markmiðið er að efla samvinnu, sjálfstæði og hópefli og gefa nemendum tækifæri til að kynnast hvert öðru utan skólastofunnar. Nemendur gista í skálum, smyrja eigið nesti og bera lágmarksbúnað, en farangur er fluttur milli skála. Ferðin hefur reynst mikilvæg upplifun þar sem nemendur takast á við áskoranir eins og úthald, matarmál og heimþrá, og er hún oft talin hápunktur grunnskólagöngunnar. Félagsmiðstöðin hefur síðustu ár tekið þátt til að styrkja tengslin enn frekar.

Daði Helgason, Alexander Þór Gunnarsson, Helga Dögg Þorsteinsdóttir , Gísli Ölversson og Tinna Heimisdóttir hlutu viðurkenningu fyrir Dungeons og Dragons klúbbastarf í Félkó en um er að ræða klúbbastarf þar sem börn geta komið saman, skapað sína eigin hópa og sameiginlega heima og unnið saman í hlutverkaspilinu. Verkefnið eflir félagsfærni barna, tengslamyndun og hópefli.

Önnur verkefni sem tilnefnd voru til Kópsins í ár :

  • Góðgerðarvika, Bókaklúbbar, Skapandi valgreinar, List- og verkgreinar, Orð vikunnar – heimalestur, Góðgerðarvika og Starfamessaní Álfhólsskóla.
  • Hver er ég og Hugsandi skólastofa í Hörðuvallaskóla.
  • Fagkennsla og endurröðun stundatöflu í Kársnesskóla
  • Þjónustunám í Kópavogsskóla
  • Gullinsnið og Fibonacci, Lykill að góðum samskiptum, Einstakt ferðalag, Syneta og Draumabær, sjálfbærni þema í Kóraskóla
  • Kveikjum neistann, Fiðrildaverkefnið og Unglingadeildarsamþætting í Lindaskóla
  • Bókaormur vikunnar og Fjölmenningarleg nálgun í myndlist í Salaskóla
  • Ísbúð í Smáraskóla
  • Söngleikir og Bókmenntir og snillismiðja í Snælandsskóla
  • Foreldradagur í Stjörnuheimum frístund Vatnsendaskóla
  • Molavirkni í Molanum
  • Að verða betri ég í grunnskólum Kópavogs
  • Virtual Reality verkefni frístundadeildar í Félkó