Virkniþing verður haldið í Kópavogi 25.febrúar.
Kópavogsbær í samstarfi við hin ýmsu fyrirtæki og stofnanir bjóða til virkniþings og kynna úrræði til virkni, öryggis og vellíðanar í þágu eldra fólks í veislusal HK í Kórnum miðvikudaginn 25. febrúar milli 13 og 15.
Meginmarkmiðið er að koma því fjölbreytta starfi, þjónustu og vöru sem er í boði á framfæri og stuðla á þann hátt að félagslegri virkni eldra fólks í Kópavogi og auka með því lífsgæði þeirra.
Dagskrá:
Opnunarávarp kl. 13
Ásdís Kristjánsdóttir, bæjarstjóri
Fræðsluerindi kl. 13:30
Viðar Halldórsson, Félagslegir töfrar
Skemmtiatriði
Félagar í virkni og vellíðan bjóða upp í línudans
Kynningar eru frá eftirtöldum aðilum:
Boðinn
Bókasafn Kópavogs
Digranes- og Hjallakirkja
Gjábakki
GKG - Golfklúbbur Kópavogs og Garðabæjar
Gullsmári
Heilsuvernd
Kópavogskirkja
Krónan
Lindakirkja
Mjólkursamsalan
Öryggismiðstöðin
Rauði Krosssinn
Virki og vellíðan
Heitt á könnunni, við hvetjum öll að koma og kynna sér framboðið, spjalla og njóta samvista.