Gerðarverðlaunin 2022

Finnborgi Pétursson, Ásdís, Brynja og Elísabet
Finnborgi Pétursson, Ásdís, Brynja og Elísabet

Finnbogi Pétursson hlaut Gerðarverðlaunin við hátíðlega athöfn í Gerðarsafni í gær, 14. desember. Verðlaunin voru veitt í þriðja sinn og hlýtur Finnbogi viðurkenninguna fyrir ríkulegt framlag sitt til höggmynda- og rýmislistar á Íslandi. Mikil stemning var á afhendingunni þar sem Ghost Digital tróð upp í fyrsta sinn í sex ár og tók listamaðurinn óvænt þátt í tónlistarflutningi með tvíeikinu.

Finnbogi Pétursson býr yfir einstakri sýn á heiminn og eðli hans. Í áratugi hefur hann leitast við að gefa hljóðbylgjum sjónrænt form. Til þess hefur hann notað vatn, ljós, rafmagn í alltumlykjandi innsetningum. Verk hans vekja áhorfandann til meðvitundar og fá hann til að velta fyrir sér eigin skynjun, veru sinni í rýminu, náttúrunni og alheiminum.

Gerðarverðlaunin eru til heiðurs Gerði Helgadóttur myndhöggvara og eru veitt framúrskarandi myndlistarmanni sem vinnur í skúlptúr og rýmisverk. Verðlaunin spretta upp úr sérstöðu Gerðarsafns, sem safn stofna til heiðurs listakonu sem braut blað í sögu höggmyndalistar hérlendis og átti kröftugan feril þrátt fyrir stutta ævi.

Gerðarverðlaunin eru veitt með stuðningi Lista- og menningarráðs Kópavogsbæjar og nema 1.000.000 til stuðnings við listsköpun verðlaunahafans. Dómnefnd Gerðarverðlaunanna skipa myndlistarmennirnir Kristinn E. Hrafnsson og Svava Björnsdóttir ásamt Brynju Sveinsdóttur, forstöðumanni Gerðarsafns.

Finnborgi Pétursson