- Íbúar
- 0-6 ára börn
- Grunnskólaaldur
- Ungmenni
- Okkar Kópavogur
- Heimili
- Fatlað fólk
- Eldra fólk
- Félagsleg úrræði
- Stuðningur við börn og fjölskyldur þeirra
- Þjónustuver og neyðarsímar
- Mannlíf
- Umhverfi
- Stjórnsýsla
- Umsóknir og eyðublöð
Lögð voru fram 680 tilboð frá 62 aðilum í byggingarrétt lóða í Vatnsendahvarfi í nýafstöðnu útboði. Opið var fyrir tilboð í lóðir frá 23. janúar til 20. febrúar og voru í þessum áfanga í boði lóðir fyrir einbýlishús, parhús, klasahús og fjölbýli.
„Það er virkilega ánægjulegt að sjá hversu mikil þátttaka er í útboðinu en kemur ekki á óvart, miðað við áhugann sem við höfum fundið. Vatnsendahvarf verður fallegt hverfi á frábærum útsýnisstað. Við erum þegar byrjuð á gatnagerð og að undirbúa skóla í Vatnsendahvarfi og það verður spennandi að fylgjast með hverfinu í uppbyggingu næstu árin,” segir Ásdís Kristjánsdóttir bæjarstjóri Kópavogs.
Tekið var á móti tilboðum í gegnum útboðsvef Kópavogsbæjar, Tendsign. Þess má geta að haldinn var sérstakur kynningarfundur um útboðskerfið sem mæltist vel fyrir. Allar spurningar og svör við þeim voru gerðar aðgengilegar í Tendsign í framhaldinu.
Næsta skref er að fara yfir tilboðin, meta tilboð út frá úthlutunarskilmálum og hvort þau eru gild. Að þeirri vinnu lokinni verða þau tekin til afgreiðslu á fundi bæjarráðs og í kjölfarið til afgreiðslu bæjarstjórnar.
Tilboðsgjafar sem eiga hæsta tilboð í tilteknar lóðir eru skuldbundnir til að leggja inn umsókn um byggingarleyfi eigi síðar en 12 mánuðum frá úthlutun lóðar. Úthlutun lóða telst samþykkt frá og með staðfestingu bæjarstjórnar.
Í Vatnsendahvarfi verða 500 íbúðir í fjölbýli og sérbýli og fellur byggðin vel að nágrenninu. Lögð er áhersla á umhverfisvæna byggð og góðar samgöngutengingar fyrir akandi, hjólandi og gangandi vegfarendur. Fyrsti áfangi úthlutunar lóða í hverfinu var í maí 2024, nú er verið að fara yfir tilboð í öðrum áfanga úthlutunar. Þriðji og síðasti áfangi úthlutunar verður síðar á þessu ári.