Kosning í Okkar Kópavogi

Íbúar kusu leiktæki á Rútstúni í Okkar Kópavogi.
Íbúar kusu leiktæki á Rútstúni í Okkar Kópavogi.

Kosning í íbúaverkefninu Okkar Kópavogi hefst á hádegi en hún stendur frá fimmtudeginum 23. janúar til hádegis 4.febrúar. Þetta í fimmta sinn sem íbúar í Kópavogi geta tekið þátt í kosningu um hugmyndir bæjarbúa og forgangsraðað verkefnum innan sveitarfélagsins.

Að þessu sinni er bænum skipti í tvennt í verkefninu, efri og neðri byggðir. Hverfin sem tilheyra efri byggðum eru Vatnsendi (Kórar, Hvörf og Þing) og Fífuhvammur (Lindir og Salir). Neðri byggðum tilheyra Smárahverfi, Digranes og Kársnes.

Alls fara 67 hugmyndir í kosningu, 30 í efri byggðum og 37 í neðri byggðum.

Ýmsar hugmyndir hafa orðið að veruleika í kjölfar íbúakosninga i Okkar Kópavogi. Má þar nefna æfingatæki í Kópavogsdal, leiktæki ýmis konar, ærslabelgi, aukinn gróður, jólalýsingu og bekki.

Meðal hugmynda sem fara nú í kosningu eru infrarauð sauna í sundlaugarnar, tjörn í Fossvogsdal, sjósundsaðstaða á Kársnesi, vélfryst skautasvell í Kópavogsdal og útiborðtennisborð í Salahverfi.

Alls verður 340 milljónum króna varið í framkvæmdir á þeim hugmyndum sem verða fyrir valinu og þær framkvæmdar á árunum 2025-2027. Íbúar sem verða fjórtán ára á árinu og eldri geta tekið þátt í atkvæðagreiðslu, svo framarlega sem þeir eru með rafræn skilríki.

Markmið Okkar Kópavogs er að hvetja íbúa til að taka þátt í málefnum sem varða nærumhverfi þeirra, fá þá til að leggja fram hugmyndir og forgangsraða verkefnum, og útdeila fjármagni í bæði nýframkvæmdir og smærri framkvæmdir á vegum bæjarins með íbúakosningu.

Okkar Kópavogur - nánari upplýsingar

Okkar Kópavogur - kosningavefur