Framkvæmdir við göngu- og hjólastíg meðfram Lindarvegi

Framkvæmdir við göngu- og hjólastíg meðfram Lindarvegi
Framkvæmdir við göngu- og hjólastíg meðfram Lindarvegi

Framkvæmdir við breikkun á göngu- og hjólastíg meðfram Lindarvegi á milli Fífuhvammsvegar og Arnarnesvegar hófust í byrjun maí mánaðar þar sem núverandi stígur verður breikkaður svo gangandi og hjólandi hafi sitt sérsvæði sem aðgreint verður með yfirborðsmerkingum. Jafnframt verður halli á stígnum jafnaður út og bröttustu köflunum eytt út. Bætt verður við lýsingu og þverun á gatnamótun Fitjalindar og Lindarvegar endurbætt og hækkuð upp til tryggja öryggi óvarða vegfarenda enn frekar. Verkið verður unnið í áföngum, fyrsti áfangi, ofan Fitjalindar er áætlað að verði lokið um lok júní. Annar áfangi neðan Fitjalindar er áætlað að verði lokið í október og þriðji áfangi, gatnamót Fitjalindar og Lindarvegar er áætlað að verði lokið í desember. Á tenglinum hér að neðan er hægt að nálgast yfirlitsteikningar af framkvæmdinni. Hjáleiðir fyrir gangandi og hjólandi vegfarendur eru meðfram Lindarvegi og um göngustíga í Fjallalind og Funalind. Vegfarendur er vinsamlegast beðnir um virða lokanir og nýta hjáleiðir á meðan framkvæmdum stendur.

Teikningar af stígagerð