Opið hús 10.febrúar um vinnslutillögu

Úr vinnslutillögu á Kársnesi.
Úr vinnslutillögu á Kársnesi.

Auglýstum rafrænum kynningarfundi vegna vinnslutillögu að breyttu deiliskipulagi Bakkabrautar 2-4, Bryggjuvarar 1-3 og Þinghólsbrautar 77 og 79 sem halda átti 3. febrúar er frestað til 10. febrúar næstkomandi.

Þá verður opið hús í safnaðarheimili Kópavogskirkju milli kl. 16:00-17:00 og 17:15-18:15 þar sem tillagan verður kynnt og spurningum svarað.

Hægt verður að taka á móti um 40 íbúum í einu á hvora kynninguna fyrir sig.