Jólatrén fjarlægð

Frá aðventuhátíð 2017.
Frá aðventuhátíð 2017.

Starfsmenn Þjónustumiðstöðvar Kópavogsvogs aðstoða bæjarbúa við að fjarlægja jólatré dagana 3. til og með 12. janúar. Bæjarbúar sem vilja nýta sér þessa þjónustu eru vinsamlegast beðnir um að setja jólatrén út fyrir lóðamörk og ganga þannig frá þeim að þau geti ekki fokið. Einnig geta íbúar losað sig við jólatré á endurvinnslustöðvum Sorpu án þess að greiða förgunargjald fyrri þau.