- Íbúar
- Börn og ungmenni
- Íþróttir & útivist
- Velferð
- Þjónusta
- Skipulagsmál
- Byggingarmál
- Samgöngur
- Umhverfi
- Menning
- Íbúaverkefni
- Stjórnsýsla
- Mannlíf
- þjónustugátt
- Ábendingar
Meðal herskálabyggða má nefna æfingasvæðið á Sandskeiði, ratsjárstöðina Camp Catherine á Víghól og herskálahvefið Camp Wade á Hörðuvöllum undir Vatnsendahæð þar sem bjuggu á tíma nærri 900 hermenn.
Margir fleiri kampar voru í Kópavogi á hernámsárunum og er gerð grein fyrir tilurð þeirra og tilgangi í ritinu. Fjölmargar ljósmyndir sem flestar hafa ekki birst áður eru í ritinu ásamt kortum sem sýna staðsetningu kampanna.
Smáritið var búið til prentunar af Gunnari Marel Hinrikssyni skjalaverði við Héraðsskjalasafn Kópavogs.
Félagar í Sögufélagi Kópavogs fá ritið sent án endurgjalds en aðrir geta nálgast það í Héraðsskjalasafni Kópavogs á afgreiðslutíma þess. Lausasöluverð er 1.500 kr. Þar er einnig hægt að ganga í Sögufélag Kópavogs.