- Íbúar
- Börn og ungmenni
- Íþróttir & útivist
- Velferð
- Þjónusta
- Skipulagsmál
- Byggingarmál
- Samgöngur
- Umhverfi
- Menning
- Íbúaverkefni
- Stjórnsýsla
- Mannlíf
- þjónustugátt
- Ábendingar
Ármann Kr. Ólafsson bæjarstjóri Kópavogsbæjar, Theodóra S. Þorsteinsdóttir formaður bæjarráðs Kópavogs og Kristján Þór Júlíusson heilbrigðisráðherra undirrituðu í dag samkomulag um byggingu 64 rýma hjúkrunarheimilis í Boðaþingi. Það mun rísa á lóð Kópavogsbæjar í Boðaþingi og verður tengt við byggingu með 44 hjúkrunarrýmum sem þegar hefur risið á lóðinni. Stefnt er að því að taka heimilið í notkun á seinni hluta árs 2018.
„Samkomulagið er afar ánægjulegt fyrir bæjarfélagið. Það er mikil eftirspurn eftir hjúkrunarrýmum í Kópavogi og tímabært að hefjast handa við stækkun Boðaþings,“ segir Ármann Kr. Ólafsson bæjarstjóri Kópavogs.
Heildarkostnaður við hjúkrunarheimilið er áætlaður 1.430 milljónir króna. Kostnaðurinn skiptist þannig að 85% greiðist af velferðarráðuneytinu og 15% af Kópavogsbæ. Til viðbótar þessum kostnaði fellur til kostnaður við kaup á búnaði og greiðist hann í sömu hlutföllum og byggingin.
Skipaður verður fjögurra manna starfshópur með fulltrúum heilbrigðisráðherra og Kópavogsbæjar. Fyrsta verkefni þess hóps verður að vinna að áætlulnargerð og fullnaðarhönnun hjúkunarheimilisins í samræmi við lög um um skipan opinberra framkvæmda. Þegar fullnaðarhönnun liggur fyrir skal leitað heimildar til verklegra framkvæmda hjá samstarfsnefnd um opinberar framkvæmdir.
Miðað er við að framkvæmdir hefjist á fyrsta ársfjórðungi 2017 og að taka megi heimilið í notkun á þriðja ársfjórðungi 2018.