Ásdís Kristjánsdóttir ásamt Þorgeiri Guðmundssyni, gesti númer 550 frá því að hún tók við embætti.
Þorgeir Guðmundsson, íbúi í Kópavogi, fundaði með Ásdísi Kristjánsdóttur bæjarstjóra á dögunum en svo skemmtilega vill til að Þorgeir er gestur númer 550 síðan Ásdís tók við sem bæjarstjóri.
Bæjarstjóri hefur verið með viðtalstíma í hverri viku allt kjörtímabilið og geta íbúar pantað tíma á netinu þar sem dagatal bæjarstjóra er opið. Að jafnaði koma um 12 íbúar í viðtalstíma í hverjum mánuði.
„Sem bæjarstjóri er mikilvægt að eiga samtöl við íbúa og ég hef því lagt ríka áherslu á að halda viðtalstímum allt kjörtímabilið. Eftir að við innleiddum rafrænar bókanir og opnuðum dagbók bæjarstjóra hefur orðið aukning í viðtalstímunum, sem er frábært. Erindi íbúa eru fjölbreytt, allt frá góðum hugmyndum til að gera okkar frábæra bæ enn betri eða ábendingar um hvað má betur fara. Ég leitast í framhaldinu eftir því að koma erindum íbúa í réttan farveg, eftir því sem við á,“ segir Ásdís Kristjánsdóttir, bæjarstjóri
Íbúar bóka sjálfir tíma hjá bæjarstjóra og hefur verið boðið upp á þann möguleika frá síðasta ári. Áhugasamir setja inn nafn, velja tíma og gera grein fyrir erindi.