Starfsstöðvar loka kl. 15.30 miðvikudaginn 5.febrúar

Stofnanir Kópavogs loka vegna óveðurs kl. 15.30 í dag.
Stofnanir Kópavogs loka vegna óveðurs kl. 15.30 í dag.

Frá Neyðarstjórn Kópavogsbæjar:

Starfsstöðvar Kópavogsbæjar, þar á meðal menningarhús, sundlaugar, félagsstarf aldraðra, frístundaheimili og bæjarskrifstofur loka klukkan 15.30 í dag. miðvikudaginn 5. febrúar.

Hættustigi hefur verið lýst yfir á höfuðborgarsvæðinu vegna ofsaveðurs. Rauð veðurviðvörun er í gildi milli klukkan 16 og 20 í dag og milli 08 og 13 á morgun.

Fólk er beðið um að vera ekki á ferðinni á meðan hún er í gildi.

Foreldrar eru beðnir um að sækja börn fyrir klukkan 15.30 í dag.

Skipulagt frístundastarf á vegum Kópavogsbæjar fellur niður frá kl. 15.30 í dag.

Starfsfólk Kópavogsbæjar er beðið um að fylgjast með tilkynningum frá bænum í kvöld og í fyrramálið. Þær verða birtar á vef Kópavogsbæjar.

English

The institutions of Kópavog town, including culture houses, swimming pools, social work for the elderly, leisure centers and town offices close at 15.30 today.

A state of emergency has been declared in the capital area due to severe weather. A red weather warning is in effect between 4 and 7 p.m. today and between 8 a.m. and 1 p.m. tomorrow.

People are asked not to travel while it is in effect.

Parents are asked to pick up their children by 3.30 pm today.

Activities organized by Kópavogsbær will be canceled from 15.30 today.

The staff of Kópavogsbær are asked to follow the announcements from the town tonight and in the morning. They will be published on the Kópavogsbær website.