Leikskólinn Lækur réttindaskóli

Börn og starfsfólk fagna viðurkenningu UNICEF.
Börn og starfsfólk fagna viðurkenningu UNICEF.

Leikskólinn Lækur er nýjasti réttindaskólinn í Kópavogi en hann hlaut nýverið viðurkenningu frá UNICEF.

Elstu börn leikskólans sem skipa réttindaráð þess tóku einnig við viðurkenningarskjali frá Unicef en Lækur er sjötti leikskóli bæjarins til þess að hljóta þá viðurkenningu að vera réttindaskóli UNICEF.

Gaman er að geta þess að fyrstu leikskólar í heiminum sem urðu réttindaskólar eru einmitt í Kópavogi og eru einmitt þessa dagana að taka við endurnýjun á sinni viðurkenningu.

Réttindaskólar UNICEF leggja áherslu á að byggja upp upp lýðræðislegt umhverfi með því að rækta með markvissum hætti þekkingu, leikni og viðhorf sem hjálpa börnum að verða gagnrýnir, virkir og hæfir þátttakendur í nútímasamfélagi. Verkefnið byggir á Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna og er alþjóðlegt verkefni sem snýst um að auka virðingu, vernd og framkvæmd mannréttinda.

Í tengslum við verkefnið var stofnað réttindaráð í leikskólunum en í því fá börnin tækifæri til að hafa áhrif. Umræður og verkefni sem tengjast aðgengi og þátttöku, jafnrétt og framkomu við skólafélaga hafa líka verið sett á dagskrá.

Kópavogur er barnvænt sveitarfélag og er réttindaskólaverkefni UNICEF hluti af því sem felst í að vera barnvænt sveitarfélag.

MARKMIÐ RÉTTINDASKÓLA UNICEF ERU:

  • Aukin þekking á mannréttindum – starfsfólk og börn auka þekkingu sína á réttindum barna
  •  Lýðræði – börn fá reglubundin tækifæri til þess að taka þátt í ákvarðanatöku
  •  Eldmóður fyrir mannréttindum – börn eru hvött til þess að beita sér fyrir réttindum sínum og annarra
  •  Forsendur Barnasáttmálans hluti af daglegu starfi – stjórnendur vinna með markvissum hætti að því að gera sáttmálann að viðmiði í stjórnsýslu skóla- og frístundastarfs
  •  Samstarf – samstarf skóla við alla sem koma að uppeldi barnsins með það að markmiði að raungera réttindi barnsins.