Fyrirhugað er að malbika Vatnsendaveg

Fyrirhugað er að malbika Vatnsendaveg milli Tröllakórs og Austurkór á miðvikudaginn 28. maí milli kl. 9:00 og 15:00 ef veður leyfir. Bent er á hjáleið um Markarveg og Vallakór meðfram Kórnum á meðan lokun stendur. Umferð gangandi og hjólandi helst óskert en sýna þarf aðgát þar sem farið er um í nágrenni við vinnuvélar. Beðist er velvirðingar á þeim óþægindum sem framkvæmdirnar kunna að valda og eru ökumenn beðnir um að sýna tillitssemi, halda hraða í hófi og virða merkingar.

Vatnsendavegur lokunartilynning