Lokunartilkynning fyrir fimmtudaginn 12. júní

Fimmtudaginn 12. júní verða lokanir vegna malbiksframkvæmda á eftirfarandi götum ef veður leyfir:

  • Salavegur milli Dynsala og Glósala frá kl. 9:00 til 16:00 vegna malbikunar. Bent er á hjáleiðir um Arnarnesveg og Fífuhvammsveg.
  • Dalvegur við gatnamót Hlíðarhjalla frá kl. 9:00 til 16:00 vegna fræsinga á malbiki. Skert aðkoma að fyrirtækjum við Dalveg 32A og 32B verður um Hlíðarhjalla. Fyrir ökumenn sem koma frá Nýbýlavegi er bent á hjáleið um Reykjanesbraut. Fyrir ökumenn sem koma í átt frá Smáratorgi bent á hjáleið um Digranesveg eða Skógarlind.

 

Umferð gangandi og hjólandi helst óskert en sýna þarf aðgát þar sem farið er um í nágrenni við vinnuvélar.

Beðist er velvirðingar á þeim óþægindum sem framkvæmdirnar kunna að valda og eru allir vegfarendur óháð fararmáta beðnir um að sýna tillitssemi, halda hraða í hófi og virða merkingar.