Mánudaginn 2. júní er fyrirhugað að malbika Lindarveg

Mánudaginn 2. júní er fyrirhugað að malbika Lindarveg milli Fífuhvammsvegar og Núpa-/Skógarlindar auk hringtorgs ef veður leyfir og verður götuhlutarnir lokaðir á milli kl. 9:00 og 17:00. Ökumönnum sem erindi eiga í íbúðabyggð við Hlíðardalsveg er bent á að aka um Fífuhvammsveg. Þeir sem erindi eiga til eða frá Núpalind geta ekið um bráðabirgðahjáleið frá Hlíðardalsvegi. Nauðsynlegt verður að þrengja að göngu- og hjólastíg við Núpalind og skulu þeir þar eiga leið um sýna fyllstu aðgæslu þegar farið er um í námunda við framkvæmdasvæðið.

Beðist er velvirðingar á þeim óþægindum sem framkvæmdirnar kunna að valda og eru allir vegfarendur óháð fararmáta beðnir um að sýna tillitssemi, halda hraða í hófi og virða merkingar.

Lokun vegna malbikunar á Lindarvegi