Fjölbreytt dagskrá RIFF í Kópavogi

Nemendur úr Kópavogi á kvikmyndanámskeiði í tengslum við RIFF 2015.
Nemendur úr Kópavogi á kvikmyndanámskeiði í tengslum við RIFF 2015.

40 ungmenni í 6. og 9. bekk úr skólum í Kópavogi sitja í vikunni stuttmyndanámskeið í tengslum við kvikmyndahátíðina RIFF, Reykjavík International Film Festival. Krakkarnir fá kennslu í ýmsum hliðum kvikmyndagerðar á námskeiði sem er undir stjórn Barkar Gunnarssonar leikstjóra og er haldið í Molanum, ungmennahúsi Kópavogs. Krakkarnir vinna svo að eigin stuttmynd og verða myndirnar sýndar á RIFF. Hátíðin sjálf stendur yfir frá 24. september til 4. október. Fjölmargir viðburðir verða í Kópavogi í tengslum við RIFF, sem annað árið í röð er styrkt af Kópavogsbæ, með það að markmiði að færa hluta hátíðarinnar yfir í bæinn.

 Þar má nefna sundbíó fyrir fjölskylduna í Sundlaug Kópavogs þar sem sýnd verður myndin Múmínálfarnir og halastjarnan, sýning á alþjóðlegum stuttmyndum fyrir börn og fullorðna í Bókasafni Kópavogs og viðburði tengdir  pólskri kvikmynda- og myndlist í Gerðarsafni.

Þá verður sérsýning í Gjábakka, félagsmiðstöð eldri borgara á nýrri heimildarmynd, Hver stund með þér, og tónleikar með Önnu Maríu Björnsdóttur og Svavari Knúti að sýningu lokinni.  Í Molanum verður sérsýning á íslensku gamanheimildamyndinni Humarsúpa innifalin sem fjallar um ferð Þorsteins Guðmundssonar út í Hrísey. Í Molanum verður hægt að taka þátt í kennslustund á vegum kvikmyndakommúnunar og í Bókasafninu verður námskeið í einnar mínútu myndagerð.

Franski dávaldurinn og kvikmyndagerðarmaðurinn Gruwann Tran Van Gie sýnir nýjasta kvikmyndaverkefnið sitt, Honest Experience, í Gerðarsafni og verður með hópdáleiðslu við tónlist að henni lokinni. Um er að ræða sýningu sem var frumflutt á Pompidou safninu í París í janúar.  Loks verða kvikmyndatónleikar í Salnum þar sem flutt verður tónlist úr myndum Woody Allen af jazzkvintettnum Bananas. Edda Björg Eyjólfsdóttir leikkona verður þar sérstakur gestur og sögumaður.

Ítarleg dagskrá RIFF í Kópavogi