Heiðurs- og bæjarlistamaður Kópavogs útnefndir

Theodór Júlíusson heiðurslistamaður 2014, Jón Adolf Steinólfsson bæjarlistamaður 2015, Ragnar Th. S…
Theodór Júlíusson heiðurslistamaður 2014, Jón Adolf Steinólfsson bæjarlistamaður 2015, Ragnar Th. Sigurðsson heiðurslistamaður 2015, Karen E. Halldórsdóttir, formaður lista- og menningarráðs og Ármann Kr. Ólafsson bæjarstóri Kópavogs.

Ragnar Th. Sigurðsson ljósmyndari og Norðurheimskautsfari hefur verið útnefndur heiðurslistamaður Kópavogsbæjar í ár og Jón Adolf Steinólfsson myndhöggvari hefur verið útnefndur bæjarlistamaður. Lista- og menningarráð tilkynnti þetta við hátíðlega athöfn í Gamla Kópavogsbænum í dag.

 Það er vel við hæfi að kynna útnefninguna í Gamla Kópavogsbænum en stefnt er að því að í þessu gamla og friðaða húsi verði haldin sýning næsta sumar á verkum þeirra grunnskólanema í Kópavogi sem Jón Adolf bæjarlistamaður mun starfa með í vetur og kenna tréútskurð og jákvæða hugsun.

Jón Adolf var valinn úr hópi umsækjenda um stöðu bæjarlistamanns en auglýst var eftir umsóknum í vor. Tilgangurinn með vali á bæjarlistamanni er að fá öflugan listamann til að sinna menningarfræðslu í Kópavogi á þessu og næsta ári. Jón Adolf hefur sinnt listsköpun sinni í áratugi, tekið þátt í tugum samsýninga og haldið fjölmargar einkasýningar. Auk þess hefur hann haldið námskeið í útskurði fyrir ýmsa aðila, innlenda sem erlenda. Hann hefur hlotið fjölda viðurkenninga fyrir störf sín og verk hans prýða söfn og bæjarfélög víða um lönd.

Með vali á heiðurslistamanni er verið að heiðra listamann fyrir ævistarf en Ragnar Th. hefur starfað sem atvinnuljósmyndari í meira en þrjátíu ár. Hann er einkum þekktur fyrir náttúruljósmyndir sínar og hefur tekið myndir á Norðurheimskautssvæðinu í áratugi. Hann hefur hlotið fjölda viðurkenninga og ljósmyndir hans hafa birst víða, svo sem í dagblöðum á borð við New York TimesTimeNewsweekNational GeographicDigital Photographer og Geographical. Ragnar hélt sýningu á myndum sínum í Gerðarsafni fyrr á árinu í tengslum við sýningu blaðaljósmyndara og styrkti endurhæfingarmiðstöðina Ljósið um ágóða af sölu verka sem seldust í framhaldinu hjá ljósmyndastúdíói sínu Arctic-Images.

Á síðasta ári var Theódór Júlíusson leikari útnefndur heiðurslistamaður Kópavogs og á sama tíma voru listakonurnar Þuríður Blær Jóhannsdóttir, Tinna Sverrisdóttir og Salka Sól Eyfeld útnefndar bæjarlistamenn. Lista- og menningarráð hefur útnefnt heiðurslistamann Kópavogs frá árinu 1988 en í annað sinn í ár er jafnframt valinn bæjarlistamaður.

Tilgangurinn er að varpa ljósi á þá fjölmörgu og hæfileikaríku listamenn sem búa í Kópavogi og hafa átt þátt í því að auðga menningarlíf bæjarins í gegnum tíðina.