- Íbúar
- Börn og ungmenni
- Íþróttir & útivist
- Velferð
- Þjónusta
- Skipulagsmál
- Byggingarmál
- Samgöngur
- Umhverfi
- Menning
- Íbúaverkefni
- Stjórnsýsla
- Mannlíf
- þjónustugátt
- Ábendingar
Bæjarstjórn Kópavogs samþykkti einróma á fundi bæjarstjórnar þriðjudaginn 8. september að taka á móti flóttafólki og var bæjarstjóra falið að koma afstöðu bæjarins á framfæri við Velferðarráðuneytið.
Ályktunin er svohljóðandi: "Kópavogsbær lýsir sig reiðubúinn til að taka á móti flóttafólki. Bæjarstjóra er falið að koma þeirri afstöðu á framfæri við Velferðarráðuneytið og vinna að frekari undirbúningi í samvinnu við ráðuneyti, félagsmálastjóra og önnur sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu. Kópavogsbær vill sýna ábyrgð og telur eðlilegt að bærinn, sem næst stærsta sveitarfélag landsins, bjóði flóttafólki aðstoð, í hlutfalli við stærð sína."