Söfnun og meðhöndlun fræja

Í Yndisgarðinum Fossvogi.
Í Yndisgarðinum Fossvogi.

Fræbanki Garðyrkjufélags Íslands efnir til fræðslu um söfnun og meðhöndlun fræja fimmtudaginn 7. september næstkomandi í trjásafninu í Meltungu í Kópavogi, austast í Fossvogsdal. Fræðslan hefst kl 18:00 og lýkur um kl. 19:30.

Nú er rétti tíminn til að fylgjast með þroskun fræja í garðinum, sumarbústaðalandinu og nánasta umhverfi. Sérfræðingar fræbankans ætla með þátttakendum að safna fræjum og skoða hvernig fræ hinna ýmsu tegunda líta út og hvenær það er þroskað. Þá verður kennd meðhöndlun fræja til að mynda þurrkun, geymsla og pökkun þeirra. Gefin verða góð og hagnýt ráð um sáningar og margt fleira. 

Safnast verður saman neðst í Kjarrhólma í Kópavogi þar sem leiðbeinendur taka á móti þátttakendum. 

Leiðbeinendur verða:

Barbara Stanzeit

Hannes Þór Hafsteinsson

Sigþóra Oddsdóttir

Stjórnandi verður Friðrik Baldursson garðyrkjustjóri Kópavogs.

 Fyrir þá sem ekki þekkja til er auðveldast að finna Kjarrhólma á korti hjá http://www.ja.is. Takið með ykkur klippur, blýant og blað eða merkimiða og slatta af pokum til að setja fræin í.

Árlega gefur Fræbanki Garðyrkjufélagsins út frælista og í góðu árferði má þar finna fræ af hátt í 1.000 tegundum plantna. Fræbankanum berst mikið magn fræja frá félagsmönnum Garðyrkjufélagsins sem er helsta uppistaða fræbankans. Sérstök frænefnd vinnur úr fræsendingum, flokkar og pakkar og með hækkandi sól er frælistinn gefinn út og þar geta félagsmenn pantað sér fræ ýmissa trjáa og runna, fjölærra plantna, sumarblóma og matjurta.

Fræðslan um söfnun og meðhöndlun fræja er liður í samstarfsverkefni Kópavogsbæjar og Garðyrkjufélagsins.