Sumarstörf hjá Kópavogsbæ

Sumarstarfsmenn í garðvinnu í Kópavogi tóku þátt í plasthreinsunardegi Vinnuskólans sumarið 2017.
Sumarstarfsmenn í garðvinnu í Kópavogi tóku þátt í plasthreinsunardegi Vinnuskólans sumarið 2017.

Opnað hefur verið fyrir umsóknir um sumarstörf fyrir átján ára og eldri hjá Kópavogsbæ, þá sem fæddir eru 2000 eða fyrr. Kópavogsbúar hafa þó forgang til ráðningar, að uppfylltum þeim skilyrðum sem koma fram í auglýsingu.

Tekið verður við umsóknum til 18. mars og er stefnt að því að öllum umsækjendum verði svarað í apríl.  Störfin eru af margvíslegum toga og er eingöngu hægt að sækja um rafrænt í gegnum vef Kópavogsbæjar.

Fjölmörg störf eru í boði sumarið 2018 og geta allir sótt um þau störf sem þeir óska sér í sumar inn á vefnum. Í fyrra voru um 400 manns ráðnir  til sumarstarfa hjá bænum.

Allir 14-17 ára unglingar, fæddir 2001-2004, sem eftir því óska, fá sumarvinnu í Vinnuskóla Kópavogs. Áætlanir gera ráð fyrir að ríflega 900 unglingar komi þar til vinnu í sumar. Opnað verður fyrir umsóknir í Vinnuskólann í 1. apríl. 

Yfirlit yfir öll sumarstörf hjá Kópavogsbæ.