Úrvalslóð á besta stað

Lóðin er vinstra megin á myndinni, ofan við veginn sem liggur meðfram vatninu.
Lóðin er vinstra megin á myndinni, ofan við veginn sem liggur meðfram vatninu.

Óskað er eftir tilboðum í lóðina að Hólmaþingi 7 í Kópavogi. Þetta er úrvalslóð á einum besta stað í bænum.  Hún er í almennri sölu á fjórum fasteignasölum, Remax Lind, Remax Alpha, Eignamiðlun og Eignaborg.

Heildarflatarmál lóðarinnar er 805 fermetrar fyrir einbýli á tveimur hæðum. Hámarksflatarmál hússins í fermetrum er 340 fermetrar. Heimilt er að byggja minna hús.

Nánari upplýsingar veita fyrrnefndar fasteignasölur. Tilboð skulu lögð fram fyrir milligöngu þeirra.