Áhrif verkfalls á starfsemi Kópavogsbæjar

Kópavogsbær.
Kópavogsbær.

Sundlaugar eru lokaðar í Kópavogi vegna verkfalls, starfsemi leikskóla er skert og þjónustuver og innheimta á bæjarskrifstofum lokuð.

Verkfallsaðgerðir aðildarfélaga BSRB hjá sveitarfélögum utan Reykjavíkur halda áfram mánudaginn 5. júní. Í Kópavogi fer hluti félagsfólks í Starfsmannafélagi Kópavogs, SfK, í verkfall. 

Leikskólar: Áhrif verkfalls félagsfólks í SfK eru misjöfn milli leikskóla í Kópavogi og fá foreldrar upplýsingar beint frá leikskólastjóra hvernig starfsemi leikskóla gengur fyrir sig á meðan verkfalli stendur. 

Sundlaugar í Kópavogi: Sundlaugar Kópavogs loka á meðan verkfalli stendur.

Bæjarskrifstofur Kópavogs: Þjónustuver Digranesvegi 1 lokar vegna verkfallsins. Húsið er opið starfsfólki sem er ekki í verkfalli. Starfsfólk innheimtu er einnig í verkfalli.

Verkfall í sundlaugum er ótímabundið en á leikskólum og bæjarskrifstofum er verkfall boðað til 5. júlí.