Birkisáning í Lækjarbotnum

Ung birkiplanta í Selfjalli.
Ung birkiplanta í Selfjalli.

Kópavogsbær er einn samstarfsaðila Skógræktarinnar og Landgræðslunnar í landssöfnun á birkifræjum sem hleypt var af stokkunum 16. september síðastliðinn, á Degi íslenskrar náttúru.

Fræjunum sem safnast á höfuðborgarsvæðinu verður sáð í örfoka land í Selfjalli í Lækjarbotnum sem er í landi Kópavogs en Selfjall blasir við á hægri hönd þegar Suðurlandsvegur er ekinn í austur frá höfuðborgarsvæðinu, og er fyrsta fjalla eftir að ekið hefur verið framhjá afleggjara í Heiðmörk.  

Almenningi verður boðið að taka þátt í sáningu birkifræjanna í tveimur viðburðum, næsta laugardag þann 26.september klukkan ellefu og 3. október á sama tíma. Fánaborg mun blasa við vegfarendum sem ætla að taka þátt í sáningunni þannig að afleggjarinn á ekki að fram hjá þátttakendum. Birkisáningin stendur frá 11.00 til 14.00.

Skógræktarfélag Kópavogs og Kópavogsbær eru í samstarfi um viðburðinn og munu þátttakendur njóta leiðsagnar um birki og sáningu á birkifræi í opið land. Mikilvægt er að vera klæddur eftir veðri og í góðum skóm.

Áhugasömum um söfnun birkifræanna er bent á að söfnunarkassar eru aðgengilegir víða á starfsstöðvum Skógræktarinnar, Landgræðslunnar, Terru og í verslunum Bónuss, þá eru söfnunartunnur komnar í verslanir Bónuss.

Átakið með landssöfnun birkitrjáa hefur það að markmiði að útbreiða á ný birkiskóglendi sem þakti að minnsta kosti fjórðung landsins við landnám. Á rýru landi er gjarnan kolefnislosun því þar er gamall jarðvegur sem enn er að rotna. Ef landið klæðist birkiskógi stöðvast þessi losun og bindin hefst í staðinn. Svona verkefni eru því líka loftlagsverkefni og hvetur fólk til að taka til hendinni í umhverfismálum.

Einfalt er að safna birkifræjum en þeim sem vilja taka þátt í söfnuninni er bent á að á heimasíðu verkefnisins, birkiskogur.is eru nánari upplýsingar um verkefnið og hvernig á að safna fræjunum.

Meira um verkefnið